Holtavörðuheiðarlína 3 – hæpin ákvarðanataka og ófullkomið samráð Friðrik Már Sigurðsson skrifar 3. febrúar 2026 15:47 Samkvæmt samantekt Landsnets vegna mats á umhverfisáhrifum Holtavörðuheiðarlínu 3 er framkvæmdin hluti af meginflutningskerfi raforku landsins. Hún telst mikilvægur þáttur í nýrri 220 kV kynslóð byggðalínu sem hefur það markmið að tengja landshluta með öruggum hætti frá Hvalfirði til Fljótsdalshéraðs. Núverandi raflínur, Blöndulína 1 og Laxárvatnslína 1, verði áfram mikilvægar tengingar við þéttbýliskjarna á Norðurlandi vestra og munu einnig styrkja tengingu við Vestfirði. Frá upphafi voru áform Landsnets skýr varðandi það að Holtavörðuheiðarlína 3 yrði hluti af meginflutningskerfi raforku, en aðrar raflínur myndu sinna svæðisbundnum tengingum innan landshluta. Vegna lagningar Holtavörðuheiðarlínu 3 voru tveir aðalvalkostir metnir: A3, svokölluð Heiðarleið og D-hlykkur, Byggðarleið. Landsnet áformar nú að leggja Holtavörðuheiðarlínu 3 eftir byggðaleiðinni, þrátt fyrir að íbúar, landeigendur og sveitarfélög á svæðinu hafi lýst yfir stuðningi við valkost A3, sem að þeirra mati væri besti kosturinn. Rökstuðningur Landsnets fyrir vali á aðalvalkosti virðist um margt vera eftiráskýringar, enda eru þar dregin fram atriði sem ekki tengjast markmiði framkvæmdarinnar, að tengja saman landshluta. Ákvarðanir þurfa að byggja á skilgreindum valkostum Í fyrirliggjandi gögnum vegna valkostagreiningar og umhverfismatsskýrslu Holtavörðuheiðarlínu 3 kemur fram að framkvæmdin grundvallist á 220 kV raflínu og tveimur tengivirkjum, við Blöndu og Holtavörðuheiði. Þetta á við báða aðalvalkosti og er meginforsenda innan bæði matsins og samráðsferlisins. Það vekur því athygli að Landsnet vísi nú til áforma um að skipta framkvæmdinni í áfanga með tengingu við tengivirki við Laxárvatn, þar sem slík hugmynd var hvergi nefnd í umhverfismati, valkostagreiningu eða öðrum gögnum sem voru kynnt í samráðsferlinu. Engin gögn voru lögð fram í ferlinu sem gerðu ráð fyrir þessum áætlunum eða fleiri tengivirkjum en Blöndu og Holtavörðuheiði sem hluta af mögulegum valkostum. Þvert á móti virðist núverandi ákvörðun byggjast á upplýsingum eða hugmyndum sem aldrei voru kynntar eða settar fram í matinu. Þetta brýtur gegn meginforsendum opinberrar stjórnsýslu, þar sem skilgreindir valkostir eru undirstaða faglegs mats og samráðs. Ófullkomið samráð og brostið traust Samráðsferlið er sá vettvangur sem sveitarfélög, landeigendur, íbúar og hagsmunaaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og haft áhrif á framgang mála. Hafa verður í huga að sú umhverfismatsskýrsla og valkostagreining sem lögð var fram í ferlinu er helsti vettvangur umræðu og samráðs í matsferlinu. Þegar breytingar eru gerðar á áætlunum fyrirhugaðrar framkvæmdar eftir að slíku ferli lýkur verður samráðið marklaust, enda gefst ekki tækifæri til að koma fram með athugasemdir við þeim. Þegar ákvörðun virðist tekin á öðrum grunni en þeim gögnum sem kynnt voru opinberlega, þá brestur traust á ferlinu og það verður erfitt að sýna fram á að niðurstaðan sé byggð á málefnalegum grunni. Þörf á endurupptöku matsins og valkostagreiningar Landsnet hefur vísað í um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku til stuðnings ákvörðunar um aðalvalkost. Þó ekki að öllu leyti heldur frekar þar sem það virðist eiga við. Benda má á að framarlega í stefnu stjórnvalda kemur m.a. fram: „Standa skal að uppbyggingunni á opinn og fyrir fram skilgreindan hátt innan ramma kerfisáætlunar, þar sem valkostagreiningar eru lagðar til grundvallar.“ Ljóst er að fyrirætlanir Landsnets varðandi Holtavörðuheiðarlínu 3 hafa breyst frá upphaflegum skilgreindum markmiðum Landsnets sjálfs. Þess vegna er eðlilegt að verkefnaráð verði kallað saman að nýju, valkostagreining verði tekin upp í takt við framkomnar fyrirætlanir. En valkostagreining og tilsvarandi umhverfismatsskýrsla skal ávallt liggja til grundvallar uppbyggingar, til að hægt sé að standa að henni á opinn og fyrir fram skilgreindan hátt. Þessi vinnubrögð væru í takt við: stefnu stjórnvalda um opna og gagnsæja uppbyggingu raforkukerfisins lögbundna ferla um starfsemi Landsnets mikilvægi sjónarmiða heimamanna, sveitarfélaga og landeigenda. Án slíkrar endurupptöku eru forsendur ákvörðunar einfaldlega brostnar. Það að taka skref til baka getur verið skref fram á við Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að Landsnet, sem hefur lýst því yfir að fyrirtækið vilji byggja upp flutningskerfi raforku í samstarfi við heimamenn, fylgi eigin gögnum sem það leggur sjálft fram í opinberu samráði. Það er ekki of mikið ætlast að: fyrirætlanir séu í samræmi við framlagða valkostagreiningu ákvarðanir byggi einungis á þeim gögnum sem voru hluti af opinberu ferli samráð sé raunverulegt en ekki formsatriði Þessar kröfur eru ekki íþyngjandi, heldur eru þær einfaldlega forsenda þess að hægt sé að byggja upp raforkuflutningskerfi landsins án teljandi ágreinings og með stuðningi íbúa, landeigenda og þeirra sveitarfélaga sem um er að ræða. Það að Landsnet hafi misstigið sig hvað varðar Holtavörðuheiðarlínu 3 er óheppilegt fyrir fyrirtækið, en það er eitthvað sem það þarf sjálft að taka ábyrgð á. Hafi Landsnet raunverulegan áhuga á því að byggja upp meginflutningskerfi raforku landsins í fyrirsjáanlegri framtíð í sátt og í samstarfi við, íbúa, landeigendur og viðkomandi sveitarfélög verður Landsnet að endurskoða fyrirætlanir sínar. Það að taka skrefið til baka getur verið skref fram á við. Það er önnur leið! Höfundur er formaður stjórnar Hagsmunasamtaka landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar