Handbolti

Goð­sögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Domagoj Duvnjak er handboltagoð í Króatíu og hann lét öllum illum látum í stúkunni í sigrinum á Íslandi.
Domagoj Duvnjak er handboltagoð í Króatíu og hann lét öllum illum látum í stúkunni í sigrinum á Íslandi. @ehfeuri

Króatar unnu Íslendinga í leiknum um bronsið á Evrópumótinu eins og flestir vita en það vita ekki eins margir að þeir fengu í leiknum svakalegan stuðning frá einni stærstu stjörnu handboltans.

Þar fór nefnilega fremst ein mesta goðsögnin í sögu króatíska handboltans, Domagoj Duvnjak. Duvnjak var öskrandi og hoppandi í stúkunni í sigrinum á Íslandi og fagnaði gríðarlega þegar bronsið var í höfn eins og má sjá hérna fyrir neðan.

Duvnjak er ekki hættur í handbolta þótt hann sé hættur með landsliðinu. Þessi 37 ára gamli leikmaður er enn að spila með þýska stórliðinu THW Kiel þar sem hann hefur spilað frá árinu 2014.

Duvnjak er bæði leikjahæsti (272 leikir) og markahæsti landsliðsmaður (796 mörk) Króata frá upphafi. Hann kvaddi landsliðið eftir nítján er með því að vinna silfurverðlaunin á heimsmeistaramótinu í fyrra.

Duvnjak vann verðlaun með Króötum á HM, EM og Ólympíuleikum en þó aldrei gull. Hann vann tvenn silfurverðlaun á heimsmeistaramótum og þrenn silfurverðlaun á Evrópumeistaramótum. Hann vann líka bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í London 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×