„Ég held að hann sé mesti pílukastari allra tíma“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 13:31 Luke Humphries faðmar Luke Littler og óskar honum til hamingju með sigurinn á World Masters-mótinu. Getty/Morgan Harlow Luke Humphries kallaði Luke Littler „besta pílukastara allra tíma“ eftir að táningurinn vann sinn fyrsta World Masters titil um helgina og varð þar með þriðji sigursælasti leikmaðurinn á PDC-tímabilinu.
Þessi nítján ára gamli leikmaður sigraði Humphries, sem er í öðru sæti heimslistans, 6-5 og hefur nú unnið ellefu stóra PDC-titla. Littler jafnar þar með James Wade og er aðeins á eftir þeim Michael van Gerwen (48 titlar) og Phil Taylor (79 titlar). Humphries, sem tapaði úrslitaleiknum, sagði við ITV4: „Þegar maður lítur til baka á allan leikinn er erfitt að finna galla. Það voru bara þrjár pílur í tvöfaldan topp [sem hann hitti ekki]. Þetta er pressan sem hann setur á mann. Hann hefur sýnt það með yfirburðum. Hann gefur aldrei eftir undir pressu,“ sagði Luke Humphries. „Ég held að hann sé besti pílukastari allra tíma,“ sagði Humphries. Sigur Littlers, sem kom í kjölfar þess að hann sigraði Gerwyn Price 5-4 í frábærum undanúrslitaleik, þýðir að Evrópumeistaramótið er nú eini stóri sjónvarpaði PDC-titillinn sem tvöfaldi heimsmeistarinn á enn eftir að vinna. Littler, sem var með 104,72 að meðaltali á móti 105,51 hjá Humphries í úrslitaleiknum, náði síðan 3-1 forystu og kláraði meðal annars 121 stiga úttekt á leiðinni. En Humphries vildi ekki gefa eftir titilinn sem hann vann í fyrra og jafnaði leikinn 1-1. Þegar staðan var 3-1 fyrir heimsmeistarann svaraði Humphries með 10 og 13 píluleggjum á leið sinni að jafna leikinn. Littler misnotaði þrjár pílur til að komast í 5-3 forystu og Humphries nýtti sér það til að jafna aftur áður en hann náði sinni fyrstu 100+ stiga úttekt á leið sinni að vera einu setti frá öðrum titli. Littler sem er í fyrsta sæti heimslistans sagði að hann hefði „alls ekkert eftir“ á þeim tímapunkti en náði að „grafa djúpt“. „Ég er úrvinda, alveg búinn á því. Þegar ég fór í síðasta hléið 5-4 undir sagði ég að ég hefði ekkert eftir, alveg ekkert, en ég náði bara að grafa djúpt,“ sagði Littler. „Ég var alveg einbeittur og náði að klára verkið. Þetta hefur verið skrítin vika og erfið á köflum en þetta er ástæðan fyrir því að við berjumst í hverjum leik og hverjum legg, og ég stóð uppi sem sigurvegari. Þetta höfum verið ég og Luke í fyrsta stórmóti ársins og ég er viss um að það muni halda áfram,“ sagði Littler. Allir fjórir undanúrslitaleikmennirnir verða aftur í eldlínunni þegar úrvalsdeildin 2026 hefst í Newcastle á fimmtudag. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Pílukast Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Jorge Messi látinn Fótbolti Fleiri fréttir Var launahæstur í sögunni í tvo daga Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira