Opið bréf til kjörinna fulltrúa: Íslensk náttúra, villtir laxastofnar og sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar eru ekki tilraunaverkefni Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 20:01 Í lagareldi er fiskurinn alinn, en auðlindin er hafið. Aðgangur að fjörðum og burðarþoli vistkerfa er sameiginleg auðlind sem skapar auðlindarentu. Tekjuskattur einn og sér tryggir ekki hlutdeild þjóðarinnar í þeirri rentu. Fyrirliggjandi frumvarp um sjókvíaeldi sem atvinnuvegaráðherra leggur nú fram felur í sér grundvallarbreytingar á því hvernig farið er með haf og firði. Þrátt fyrir ítrekaðar fullyrðingar um varfærni og vernd heimilar frumvarpið áfram eldi á frjóum laxi í opnum sjókvíum og veitir rekstraraðilum víðtækar heimildir án skýrrar ábyrgðar á afleiðingum. Hér að neðan eru einfaldar, afdráttarlausar spurningar sem kjörnir fulltrúar verða að svara og okkar kjósenda er vitanlega ábyrgðin að spyrja þeirra! Svörin skipta máli — því þau varða óafturkræf áhrif á náttúru Íslands, fjárhagslega áhættu almennings og að endingu um traust til stjórnsýslu á Íslandi. En fyrst grundvallarspurningin: 1. Ef hafið er ekki auðlind í þessu frumvarpi, hvers vegna er þá aðgangur að fjörðum takmarkaður, úthlutaður og verðlagður? Villtur lax og umhverfisvernd 2. Styður þú frumvarp sem heimilar eldi á frjóum laxi í opnum sjókvíum — já eða nei? Ef já: hvers vegna telur þú óafturkræfan erfðaskaða á villtum laxastofnum ásættanlegan? 3. Hvaða grein frumvarpsins tryggir að strokulax úr eldi blandist ekki villtum laxastofnum? Vinsamlegast nefndu greinina. 4. Telur þú að hægt sé að koma í veg fyrir strok úr opnum sjókvíum? Ef svo er: nefndu eitt land þar sem þau eiga sér ekki stað. Eignarhald og kvótar 5. Styður þú að laxahlutir séu framseljanlegir, endurnýjanlegir og nýtanlegir sem trygging fyrir fjármögnun — já eða nei? 6. Ef laxahlutir eru ekki eignarréttur, hvers vegna virka þeir þá í reynd sem varanlegar eignir? Hvaða raunverulega vernd veitir almenningi þetta orðalag? 7. Hvers vegna styður þú ákvæði sem heimilar að vikið sé frá hæsta boði við úthlutun? Hver fær að taka þá ákvörðun og á hvaða gagnsæju forsendum? Eftirlit og framkvæmd 8. Hvernig réttlætir þú að Matvælastofnun eigi bæði að efla atvinnugreinina og hafa strangt eftirlit með henni? 9. Hvers vegna telur þú þetta ekki hagsmunaárekstur? 10. Hvers vegna styður þú vöktunarkerfi sem mælir umhverfisáhrif á margra ára fresti, þegar skaðinn reynist varanlegur? Fjárhagsleg áhætta 11. Telur þú að lífeyrissjóðir muni verða fyrir þrýstingi til að fjárfesta í þessari atvinnugrein? Ef þú neitar: hvaða innlenda fjármagn kemur í staðinn? 12. Ef bankar koma til með að lána stórar fjárhæðir til kvótahafa og greinin fellur, hver ber tapið að þínu mati — skattgreiðendur eða enginn? 13. Hvar í frumvarpinu tryggir þú að þjóðin fái raunverulegan, glufulausan auðlindarentuskatt af hagnaði sem verður til í íslenskri auðlind? Nefndu þá grein sem tryggir hagnaðinn. Ábyrgð og útleið 14. Ef nauðsynlegt verður að banna sjókvíaeldi í firði vegna skaða, telur þú að ríkið eigi að bæta rekstraraðilum tjón — já eða nei? Ef já: hvers vegna á almenningur að bæta skaða, sem lögin, sem þú styður, heimila? 15. Hvers vegna byggir frumvarpið ekki á reynslu og niðurstöðum Noregs, þar sem sjókvíaeldi á frjóum laxi hefur verið stundað í áratugi með alvarlegum og vel skjalfestum afleiðingum fyrir villta laxastofna og umhverfi? Náttúra landsins nýtur í frumvarpinu ekki lagalegra verndarákvæða sem tryggja að skaða verði afstýrt, heldur einungis áforma um að reyna að draga úr honum. Það skal haft hugfast að það sem ekki er í lagatextanum sjálfum er EKKI tryggt. Höfundur er leikkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun