Valgeiri létt eftir langa martröð Sindri Sverrisson skrifar 2. febrúar 2026 17:30 Valgeir Lunddal fagnar með félaga sínum Anouar El Azzouzi eftir sigurinn gegn Paderborn í gær. Getty/Anke Waelischmiller Nú horfir til bjartari tíma hjá landsliðsbakverðinum Valgeiri Lunddal en eftir að hafa verið frá keppni í fjóra mánuði vegna meiðsla er hann byrjaður að spila fótbolta með liði Fortuna Düsseldorf að nýju. „
Við höfum saknað ykkar,“ stóð í færslu Fortuna á Instagram, eftir að þeir Valgeir og Sotiris Alexandropoulos sneru úr meiðslum og spiluðu í 2-1 sigrinum gegn Paderborn í gær, í þýsku B-deildinni. Valgeir var nærri því að skora í leiknum, eins og sjá má. View this post on Instagram A post shared by Fortuna Düsseldorf (@f95) Ekki að ástæðulausu því Valgeir hafði verið fjarverandi allt frá því að hann meiddist í fæti í leik gegn Bochum 27. september. „Ég man þessa dagsetningu vel því þetta hefur verið erfitt fyrir mig alveg síðan þá,“ sagði Valgeir í viðtali við Rheinische Post fyrir slaginn við Paderborn. Þessi 24 ára gamli hægri bakvörður var í fyrsta landsliðshópi Arnars Gunnlaugssonar, í leikjunum við Kósovó í mars, þá reyndar einnig að stíga upp úr meiðslum, en hefur síðan ekki getað bætt við sína 16 A-landsleiki. Nú gæti hann komið til greina í leikina við Kanada og Haítí í lok næsta mánaðar. Komu sér úr fallsæti Hann er þó meðvitaður um að fara varlega af stað eftir meiðslin sem hann hefur glímt við. „Þegar ég kom aftur út á völlinn [eftir að hafa meiðst í fæti] þá fórum við kannski aðeins of geyst svo ég meiddist í læri. Núna líður mér vel og við höfum verið að byggja ofan á það síðsutu 3-4 vikur. Ég er mjög ánægður með það,“ sagði Valgeir sem spilaði svo rúman hálftíma í leiknum í gær. Fortuna er í 13. sæti af 18 liðum þýsku B-deildarinnar, með 23 stig eftir 20 umferðir og væri liðið í fallsæti ef það hefði ekki unnið í gær. Næsti leikur er við Karlsruhe næstkomandi sunnudag.
Þýski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira