Skerjafjarðargöng – spörum tíma í umferðinni Hilmar Ingimundarson skrifar 2. febrúar 2026 11:17 Umferðarteppur á höfuðborgarsvæðinu er vaxandi áskorun. Ferðatími lengist, álag eykst og daglegt skipulag fólks verður sífellt flóknara. Við þessar aðstæður er eðlilegt að staldra við og skoða nýjar hugmyndir af yfirvegun. Ræða þarf tækifæri sem gætu styrkt samgöngukerfið til lengri tíma, án þess að flýta sér eða festa sig í lausnum sem ekki hafa verið fullreyndar. Ein slík hugmynd sem vert er að setja á dagskrá eru Skerjafjarðargöng, með tengingu milli Engidals í Hafnarfirði og Suðurgötu í Reykjavík. Hugmyndin hefur verið til umræðu áður og liggja fyrir ýmsar greiningar og skýrslur, þó ekki liggi fyrir afgerandi niðurstaða um útfærslu, kostnað eða framkvæmdaleið. Það eitt og sér kallar á vandaða nálgun. Markmið slíkrar tengingar væri fyrst og fremst að bæta flæði og styrkja hringtengingu í samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Með fleiri tengingum má dreifa álagi, stytta leiðir og auka sveigjanleika kerfisins í heild. Slíkt getur skipt máli, bæði fyrir einkabíla og almenningssamgöngur, sem byggja á áreiðanleika og fyrirsjáanleika. Skerjafjarðargöng myndu ekki leysa allan umferðarvanda svæðisins og væru ekki staðgengill fyrir aðrar nauðsynlegar samgöngubætur. Þau væru hluti af stærri mynd, möguleg viðbót við núverandi kerfi, sem þyrfti að meta í samhengi við aðrar lausnir, bæði í tíma og rúmi. Ástæða er til að skoða hugmyndina frekar með markvissum og skýrum hætti. Setja ætti verkefnið í skipulegt ferli, til dæmis með sérstöku undirbúningsfélagi, sem hefði það hlutverk að safna gögnum, bera saman kosti, meta kostnað, áhættu og mögulega fjármögnun. Slík nálgun skapar gagnsæi og stuðlar að ábyrgri ákvarðanatöku. Fjármögnun er lykilatriði í allri umræðu um stór innviðaverkefni. Áður en tekin er afstaða þarf að liggja fyrir hvernig slíkt verkefni yrði greitt, hvaða áhrif það hefði á opinber fjármál og hvort mögulegt sé að tengja fjármögnun beint við notkun, til dæmis með veggjöldum. Slíkt þarf að skoða af kostgægni með tilliti til langtímahagsmuna samfélagsins. Kjarni málsins er að við þurfum að leyfa okkur að ræða framtíðarsamgöngur af víðsýni og yfirvegun. Safna þarf hugmyndum, bera saman kosti og galla og taka ákvarðanir á grundvelli gagna. Betra flæði í samgöngum snýst að lokum um að spara fólki tíma og gera daglegt líf einfaldara, en það verður aðeins gert með ábyrgri forgangsröðun og traustu arðsemismati. Jarðgangnagerð krefst fyrirhyggju og margra ára undirbúnings. Miðað við stöðu samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu er fyllilega tímabært að setja nú þegar undirbúningsathugun á Skerjafjarðargöngum á dagskrá. Niðurstaða hennar getur verið gott innlegg í framtíðarsýn á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins til lengri tíma. Höfundur sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar