Handbolti

Gísli Þor­geir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson ver hér eitt af níu vítaköstum sínum á Evrópumótinu.
Viktor Gísli Hallgrímsson ver hér eitt af níu vítaköstum sínum á Evrópumótinu. Vísir/Vilhelm

Íslensku landsliðsmennirnir eru áberandi meðal efstu manna í tölfræði Evrópumótsins í handbolta sem lauk í gær og Ísland á menn í efsta sætinu á tveimur listum.

Hver lét netið oftast syngja á EM? Hver var bestur í að finna samherja sína? Hvaða markvörður varði flest skot? Og hver eyddi mestum tíma á handboltavellinum?

Danir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn en hvaða leikmenn sköruðu fram úr á mótinu?

Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki aðeins valinn í úrvalsliðið heldur var hann einnig sá leikmaður sem gaf flestar stoðsendingar á samherja sína. Gísli endaði með sex fleiri stoðsendingar en Daninn Mathias Gidsel. Gísli fiskaði líka flest víti á mótinu.

Gidsel varð markakóngur Evrópumótsins og setti nýtt EM-markamet með því að skora 68 mörk á mótinu. Hann var eins og áður sagði einnig í öðru sæti í stoðsendingum og kom því að langflestum mörkum eða meira en fjörutíu prósentum marka danska liðsins.

Ísland átti fleiri menn á toppnum en Gísla Þorgeir því Viktor Gísli Hallgrímsson varði flest víti allra markavarða á mótinu eða níu talsins. Hann varði einu víti fleira en Daninn Emil Nielsen. Viktir Gísli varð síðan í þriðja sætinu yfir flest varin skot.

Óðinn Þór Ríkharðsson varð í öðru sæti á eftir Gidsel eftir flestum spiluðum mínútum. Gidsel var sá eini sem spilaði í meira en átta klukkustundir en hann var inni á vellinum í átta klukkustundir og tuttugu mínútur. Óðinn Þór varð annar því hann var inni á vellinum í sjö klukkustundir og fjórtán mínútur. Ísland átti alls fjóra leikmenn á topp tíu yfir flestar spilaðar mínútur því Viktor Gísli Hallgrímsson varð fimmti, Elliði Snær Viðarsson áttundi og Ómar Ingi Magnússon níundi.

Strákarnir okkar urðu að sætta sig við fjórða sætið.Vísir/Vilhelm
  • Flest skoruð mörk
  • Mathias Gidsel (Danmörk) – 68 mörk (EM-met)
  • Simon Pytlick (Danmörk) – 64 mörk
  • Francisco Costa (Portúgal) – 61 mark
  • Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 55 mörk
  • August Pedersen (Noregur) – 49 mörk
  • Domen Makuc (Slóvenía) – 48 mörk
  • Bence Imre (Ungverjaland) – 46 mörk
  • Martim Costa (Portúgal) – 44 mörk
  • Renārs Uščins (Þýskaland) – 43 mörk
  • Emil Jakobsen (Danmörk) – 40 mörk
  • Ivan Martinovic (Króatía) – 40 mörk
  • -
  • Flestar stoðsendingar
  • Gísli Kristjánsson (Ísland) – 62 stoðsendingar
  • Mathias Gidsel (Danmörk) – 56 stoðsendingar
  • Sander Sagosen (Noregur) – 39 stoðsendingar
  • Rui Silva (Portúgal) – 37 stoðsendingar
  • Blaž Janc (Slóvenía) – 35 stoðsendingar
  • Salvador Salvador (Portúgal) – 33 stoðsendingar
  • Simon Pytlick (Danmörk) – 32 stoðsendingar
  • Felix Aellen (Sviss) – 32 stoðsendingar
  • Julian Köster (Þýskaland) – 31 stoðsending
  • Domen Makuc (Slóvenía) – 30 stoðsendingar
  • Thibaud Briet (Frakkland) – 30 stoðsendingar
  • -
  • Þáttur í flestum mörkum
  • Mathias Gidsel (Danmörk) – 124 mörk
  • Gísli Kristjánsson (Ísland) – 96 mörk
  • Simon Pytlick (Danmörk) – 96 mörk
  • Francisco Costa (Portúgal) – 82 mörk
  • Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 81 mark
  • Domen Makuc (Slóvenía) – 78 mörk
  • Blaž Janc (Slóvenía) – 74 mörk
  • Sander Sagosen (Noregur) – 69 mörk
  • Tin Lučin (Króatía) – 66 mörk
  • Renārs Uščins (Þýskaland) – 62mörk
  • -
  • Flest varin víti
  • Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 9 varin víti
  • Emil Nielsen (Danmörk) – 8 varin víti
  • Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 7 varin víti
  • Andreas Wolff (Þýskaland) – 4 varin víti
  • Dominik Kuzmanović (Króatía) – 4 varin víti
  • Gustavo Capdeville (Portúgal) – 4 varin víti
  • Charles Bolzinger (Frakkland) – 4 varin víti
  • Robin Haug (Noregur) – 4 varin víti
  • -
  • Flest varin skot
  • Andreas Wolff (Þýskaland) – 91 markvarsla
  • Emil Nielsen (Danmörk) – 80 markvörslur
  • Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 77 markvörslur
  • Torbjørn Bergerud (Noregur) – 64 markvörslur
  • Andreas Palicka (Svíþjóð) – 63 markvörslur
  • Kristóf Palasics (Ungverjaland) – 62 markvörslur
  • Nikola Portner (Sviss) – 59 markvörslur
  • Dominik Kuzmanović (Króatía) – 54 markvörslur
  • Sergey Hernández (Spánn) – 50 markvörslur
  • Gustavo Capdeville (Portúgal) – 47 markvörslur
  • -
  • Flestar mínútur á vellinum
  • Mathias Gidsel (Danmörk) – 8 klukkustundir og 20 mínútur
  • Óðinn Þór Ríkharðsson (Ísland) – 7 klukkustundir og 14 mínútur
  • Magnus Saugstrup (Danmörk) – 7 klukkustundir og 11 mínútur
  • Hampus Wanne (Svíþjóð) – 7 klukkustundir
  • Viktor Gísli Hallgrímsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 53 mínútur
  • Lukas Zerbe (Þýskaland) – 6 klukkustundir og 39 mínútur
  • David Mandić (Króatía) – 6 klukkustundir og 37 mínútur
  • Elliði Snær Viðarsson (Ísland) – 6 klukkustundir og 32 mínútur
  • Ómar Ingi Magnússon (Ísland) – 6 klukkustundir og 26 mínútur
  • Gino Steenaerts (Sviss) – 6 klukkustundir og 22 mínútur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×