Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson skrifar 2. febrúar 2026 11:01 Á undanförnum árum hafa einstaklingar og fyrirtæki notið góðrar ávöxtunar á óbundnum innlánsreikningum, að mestu leyti vegna hárra stýrivaxta. Þegar stýrivextir breytast hefur það fljótt áhrif á vaxtakjör innlánsreikninga. Í umhverfi vaxtabreytinga kann að vera skynsamlegt fyrir einstaklinga að færa hluta sparnaðar síns úr innlánum í önnur fjárfestingarform, t.d. verðbréfasjóði eða sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta með það að markmiði að bæta ávöxtun til lengri tíma. Stýrivextir lækkuðu um 0,25 prósentustig í nóvember sl. og eru nú 7,25%. Vextir hafa samtals lækkað um 2,0% frá því að þeir stóðu hæst í 9,25% í október 2024. Útlit er fyrir að stýrivextir haldi áfram að lækka síðar á árinu 2026 ef marka má spár greiningaraðila, þó að væntingar um það hafi færst til í tíma. Þannig ættu horfur um kólnandi hagkerfi og hóflegri verðbólgutakt þegar fram líða stundir að styðja við frekari vaxtalækkanir hérlendis. Þó að það geti leynst góð tækifæri í því að fjárfesta í stökum hlutabréfum getur verið skynsamlegt fyrir þá sem eru að byrja að fjárfesta að kynna sér sjóði sem fjárfesta í verðbréfum. Sjóðir hafa um árabil verið algengur fjárfestingakostur meðal einstaklinga og fyrirtækja. Nokkuð hefur þó borið á umræðu um kostnað þess að fjárfesta í sjóðum og hvort hann sé réttlætanlegur. Slík gagnrýni er í sjálfu sér eðlileg og mikilvægt að fjárfestar leggi mat á kosti og galla sjóðaformsins. En hvað fá fjárfestar fyrir þann kostnað sem sjóðirnir bera og hverjir eru helstu kostir þess að fjárfesta í sjóðum? Áhættudreifing og val á áhættu Einn helsti kostur sjóða er áhættudreifing og möguleikinn á að velja áhættustig sem hentar hverjum og einum fjárfesti. Áhættudreifing felst í því að dreifa fjárfestingum yfir ólíka eignaflokka, innan eignaflokka, milli atvinnugreina og útgefenda í stað þess að leggja áherslu á einstakar eignir. Með því má draga úr áhrifum verðsveiflna einstakra verðbréfa á afkomu fjárfestingar. Í tilfelli skuldabréfasjóða er ýmist fjárfest í skuldabréfum útgefnum af ríki, sveitarfélögum, fjármálafyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum. Slíkir sjóðir geta hentað bæði til skemmri eða lengri tíma, eftir eignasamsetningu viðkomandi sjóðs. Sumir skuldabréfasjóðir fjárfesta eingöngu í ríkisbréfum, aðrir fjárfesta bara í skuldabréfum banka og fyrirtækja og svo eru til sjóðir sem fjárfesta bæði í ríkisbréfum og skuldabréfum banka og fyrirtækja. Í tilfelli hlutabréfasjóða er fjárfest í fjölbreyttum hópi fyrirtækja, bæði skráðum og óskráðum. Þar á meðal eru vísitölusjóðir sem fylgja ákveðnum hlutabréfavísitölum og fylgir þeim yfirleitt minni kostnaður fyrir fjárfesta samanborið við hlutabréfasjóði sem eru í virkri stýringu. Blandaðir sjóðir fjárfesta bæði í skuldabréfum og hlutabréfum, auk þess sem þeir geta fjárfest í öðrum sjóðum með dreifð eignasöfn. Þeir geta verið hentugur kostur fyrir fjárfesta sem vilja dreifa áhættu enn frekar og velja vægi hlutabréfa í eignasamsetningu í samræmi við eigið áhættuþol. Með kaupum í einum blönduðum sjóði getur fjárfestir þannig náð fram góðri áhættudreifingu á einfaldan hátt. Jafnframt felst í sjóðaforminu að sérfræðingar með reynslu af fjármálamörkuðum annist stýringu og eftirlit með fjárfestingum, sem getur verið hagkvæmt fyrir þá sem hvorki hafa tíma né aðgang að sömu upplýsingum og sérþekkingu og fagfjárfestar. Aukinn aðgangur og stærðarhagkvæmni Fyrir utan áhættudreifingu og faglega stýringu veita sjóðir fjárfestum aðgang að tækifærum sem annars væru óaðgengileg. Til dæmis nemur lágmarksfjárhæð fjárfestinga í fyrirtækjaskuldabréfum oft 20 milljónum króna. Með því að kaupa í skuldabréfasjóði eða blönduðum sjóði sem fjárfestir í slíkum bréfum er hægt að komast fram hjá þessum hindrunum. Auk þess gera ýmsir sérhæfðir sjóðir fjárfestum kleift að fjárfesta í fagfjárfestasjóðum og hlutabréfum fyrir skráningu á hlutabréfamarkað (Pre-IPO). Þá felst ákveðið kostnaðarhagræði í sjóðaforminu. Sjóðstjórar viðkomandi sjóðastýringarfyrirtækis geta keypt og selt í öðrum sjóðum sama sjóðastýringarfyrirtækis án kostnaðar. Þar að auki borga sjóðir yfirleitt lægri viðskiptaþóknanir þegar þeir eiga viðskipti með verðbréf í krafti stærðar. Þessu hagræði gætu einstakir fjárfestar sjaldnast náð fram á eigin spýtur. Skattalegt hagræði og einfaldara skattframtal Skattalegt hagræði er annar lykilþáttur sem ber að nefna þegar horft er til kosta þess að fjárfesta í sjóðum. Þegar einstaklingur fjárfestir í sjóði þarf ekki að borga fjármagnstekjuskatt fyrr en við sölu sjóðsins. Gengi verðbréfanna í sjóðnum getur bæði hækkað og lækkað, eins og gengur og gerist á fjármálamarkaði, og þá nýtist gengistap af einni eign á móti gengishagnaði af annarri. Þannig er fjármagnstekjuskattur einungis greiddur af nettóávöxtun þegar hlutir í sjóðnum eru seldir. Þá fylgir eign í sjóðum einfaldara skattframtal. Í stað þess að færa margar einstakar eignir í framtal er fjárfesting í sjóði skráð sem ein eign, þrátt fyrir að sjóðurinn samanstandi af fjölda undirliggjandi eigna. Taktu fyrsta skrefið Fyrir þau sem eiga eftir að taka fyrsta skrefið að fjárfestingu í sjóðum getur hentað að skrá sig í mánaðarlega áskrift í sjóðum fyrir almenna fjárfesta. Þar velur fjárfestir fasta upphæð sem er skuldfærð sjálfkrafa af bankareikningi og lögð inn í sjóð að eigin vali. Um er að ræða einfalda leið til að byggja smám saman upp langtímasparnað. Það getur verið yfirþyrmandi að taka fyrsta skrefið en hér er hægt að nálgast frekara fræðsluefni um fyrstu skrefin. Þá stendur Íslandsbanki fyrir fræðslufundi 4. febrúar nk. þar sem farið verður yfir hverju þarf að huga að varðandi sparnaðinn þegar vaxtaumhverfið breytist. Á fundinum verður jafnframt farið nánar yfir helstu kosti þess að fjárfesta í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta og hvaða skref þarf að taka til að hægt sé að kaupa í þeim. Höfundur er aðstoðarmaður sjóðastýringar hjá Íslandssjóðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar