Sport

Dag­skráin í dag: Enski boltinn og Ís­lendingur í eld­línunni

Aron Guðmundsson skrifar
Sandra María Jessen mætir Wolfsburg í liði Köln. 
Sandra María Jessen mætir Wolfsburg í liði Köln.  Getty/Marcio Machado

Fótboltinn á sviðið á sportrásum Sýnar í dag. Það er leikið í enska boltanum og þá er íslenska landsliðskonan Sandra María Jessen í eldlínunni með FC Köln í þýska boltanum. 

Leikur Wolfsburg og FC Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta hefst klukkan fimm og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. 

Þá er einn leikur á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar þegar að Sunderland tekur á móti Burnley á Leikvangi ljóssins klukkan átta. leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport. 

Á sama tíma á Sýn Sport Ísland verður Körfuboltakvöld Extra, í umsjón Stefáns Árna Pálssonar á dagskrá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×