Handbolti

Sig­valdi kemur inn fyrir Teit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigvaldi Björn Guðjónsson í upphitun fyrir bronsleikinn.
Sigvaldi Björn Guðjónsson í upphitun fyrir bronsleikinn. vísir/vilhelm

Snorri Steinn Guðjónsson gerir eina breytingu á íslenska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Króatíu um bronsið á Evrópumótinu í handbolta.

Sigvaldi Björn Guðjónsson, sem var skráður til leiks á EM í dag, kemur inn í íslenska hópinn fyrir Teit Örn Einarsson. Annað í íslenska hópnum er óbreytt.

Sigvaldi var ekki valinn í EM-hópinn en kom til móts við íslenska liðið í Herning. Hann var utan hóps gegn Danmörku í undanúrslitunum en kemur inn í íslenska liðið fyrir leikinn í dag.

Íslenski hópurinn

Markmenn:

  • Björgvin Páll Gústavsson, Valur (295/26)
  • Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2)

Aðrir leikmenn:

  • Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (115/120)
  • Bjarki Már Elísson, Veszprém (136/441)
  • Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (33/8)
  • Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (72/168)
  • Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (83/199)
  • Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (55/76)
  • Janus Daði Smárason, Pick Szeged (108/2009)
  • Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142)
  • Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (66/208)
  • Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg (102/384)
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (85/230)
  • Viggó Kristjánsson, Erlangen (81/248)
  • Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (116/48)
  • Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (24/39)

Leikur Íslands og Króatíu hefst klukkan 14:15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi. Leiknum verða svo gerð ítarleg skil á vefnum.


Tengdar fréttir

Allir trúa á brons í Herning

Það er ljómandi stemning hjá íslenskum áhorfendum í Boxen fyrir leik og allir trúa því að bronsið fari til Íslendinga.

Hjartað og andinn muni skila sigri

„Menn eru bara spenntir og vilja gera allt til að klára þennan mánuð okkar saman vel. Medalía yrði frábær endir á þessu móti,“ segir Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, sem mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í Herning í dag.

Gísli valinn í úrvalslið EM

Leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, var valinn í úrvalslið Evrópumótsins 2026.

Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn

„Maður er eins góður og við má búast. Maður hefur reynt að gleyma svekkelsinu og einblína á Króatana,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, línumaður íslenska landsliðsins, þegar hann var tekinn tali í gær. Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í dag.

Sigvaldi skráður til leiks

Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur verið skráður inn í Evrópumótið í handbolta

Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima

Króatískir fjölmiðlar greina frá því að veikindi herji á króatíska landsliðshópinn í handbolta sem mætir Íslandi í leik um bronsið á EM í Herning í dag. Markvörður liðsins hélt sig á hótelinu á meðan liðið fór í leikdagsgöngu.

„Bæði lið eru á felgunni“

Það er komið að því. Í dag skýrist hvort strákarnir okkar fara með verðlaun heim frá EM eður ei. Fram undan er leikur gegn Króatíu um bronsverðlaunin.

„Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“

Spurning sem brennur á mörgum Íslendingum í dag er hvort Dagur Sigurðsson muni hafa af liðinu bronsmedalíu á EM. Hann stýrir Króötum gegn Íslandi í leik um bronsið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×