Framboð sem byggir á trú á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 13:01 Ég er 32 ára þriggja barna móðir. Börnin mín eru 10 ára, 2 ára og 3 mánaða. Eins og margar fjölskyldur á Akureyri finn ég daglega hvernig ákvarðanir sveitarfélagsins hafa raunveruleg áhrif á lífið okkar, hvort við fáum leikskólapláss, hvernig skólastarfi er háttað, hvernig opinber þjónusta er veitt, hvort hér sé húsnæði sem okkur hentar og að hér séu tækifæri og atvinnuöryggi. Sú reynsla sem ég hef fengið á vinnumarkaði og í stjórnmálum hefur kennt mér að góðar ákvarðanir verða ekki til af tilviljun. Þær verða til þegar fólk hefur skýra framtíðarsýn, lausnamiðað viðhorf og hugrekki til að forgangsraða. Tækifærin leynast í stórhuga atvinnustefnu Akureyri á að vera samfélag þar sem fólk getur byggt sér framtíð á öllum æviskeiðum. Þar sem ungt fólk sér tækifæri, fjölskyldur finna öryggi og eldri kynslóðir halda áfram að vera virkur hluti af samfélaginu. Til þess þarf öflugt atvinnulíf. Atvinnulíf skapar tekjur, tekjur skapa svigrúm og svigrúm gerir okkur kleift að veita íbúum Akureyrar góða þjónustu sem og lækka álögur. Sveitarfélagið á að skapa skilyrði fyrir fyrirtæki til að blómstra, allt frá nýsköpun og frumkvöðlastarfi til rótgróinna fyrirtækja sem hafa verið burðarásar bæjarins um áratugaskeið. Sveitarfélagið verður að marka skýra atvinnustefnu til framtíðar í góðu samráði við atvinnulífið þar sem allar raddir þurfa að heyrast. Samtal milli bæjarins og atvinnulífs verður að vera í forgangi á næstu misserum. Framtíðarsýn í atvinnumálum verður að ná til lengri tíma en eins kjörtímabils, þannig leyfist okkur að leggja fram stórhuga en í senn raunhæfar hugmyndir til lengri tíma. Spennandi tækifæri eru til staðar í hafnartengdri starfsemi en þá verður til dæmis að hafa í huga að nýta þá innviði sem þegar eru til staðar, halda áfram að vinna að hugmyndum um uppbyggingu, til dæmis, á Dysnesi og Krossanesi og tryggja að tækifærin sem blasa við í hafnartengdri starfsemi verði að veruleika, íbúum og atvinnulífi Akureyrar til hagsbóta. Ábyrg meðferð almannafjár Ég brenn fyrir því að farið sé vel með almannafé. Skattfé íbúa er ekki sjálfsagt og stjórnmálamönnum ber skylda til að nýta það af ábyrgð. Það þýðir einfaldlega að forgangsraða. Setja fjármuni þar sem þeir skila raunverulegum árangri í lífi fólks, ekki í flókna yfirbyggingu eða verkefni sem líta vel út á pappír en skila litlu. Ábyrg fjármál eru ekki hugmyndafræði, þau eru forsenda trausts. Rekstur bæjarins hefur heilt yfir gengið vel á kjörtímabilinu og ástæða er til að taka ákvörðun um að nýta það svigrúm sem gefist hefur til að lækka álögur enn frekar á íbúa. Skólar sem byggja á gæðum Við í Sjálfstæðisflokknum trúum því að menntakerfið sé besta tólið til að tryggja jöfn tækifæri. Sem móðir veit ég að skólakerfið er eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélagsins. Það krefst þess að við leggjum áherslu á gæði: vel menntað og metið starfsfólk, skýra faglega sýn og umhverfi þar sem börn fá að blómstra hvert á sínum forsendum. Menntun er langtímafjárfesting og við eigum að hafa metnað til að leggja okkur öll fram í samræmi við það. Tengls foreldra við skóla eru mér hugleikin og það er mikilvægt að þau tengsl verði elfd til muna. Nýr tónn og skýr forysta Ég sækist eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri vegna þess að ég trúi því að bærinn okkar geti gert betur. Með ábyrgum fjármálum, stórhuga atvinnulífi, skólum í hæsta gæðaflokki og samfélagi þar sem allir finna sinn stað. Akureyri getur átt sér bjarta framtíð og ég vonast eftir stuðningi þínum til að vinna af kappi til að gera hana að veruleika. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Akureyri Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar