Handbolti

„Mér var ná­kvæm­lega sama um þetta allt saman“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð Gíslason var léttur í lund í morgunsárið þrátt fyrir lítinn svefn.
Alfreð Gíslason var léttur í lund í morgunsárið þrátt fyrir lítinn svefn. vísir/vilhelm

Alfreð Gíslason er kominn með Þýskaland í úrslitaleik EM og hann var eftirsóttur maður á viðtalssvæðinu í Boxen í gær. Hann sagðist hafa átt fína nótt.

„Hún var bara notaleg. Ég var að klippa til svona hálf fjögur og byrjaði aftur sjö í morgun. Einhvern veginn er það auðveldara þegar maður er að vinna. Það er skrítið,“ sagði Alfreð laufléttur í morgunsárið.

Klippa: Alfreð hefur staðið í ströngu

Alfreð var á fundinum er Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, hellti úr skálum reiði sinnar í garð EHF en hvað finnst honum um þessa gagnrýni?

„Auðvitað er það þannig að þeir sem voru í hinum riðlinum voru í léttari riðli en álagið í lokin var aftur á móti mun meira. Það var líka þannig með Ísland eins og Króatíu. Þetta er ekki gott fyrirkomulag en menn vissu þetta fyrir meira en hálfu ári síðan og hefðu átt að mótmæla þá. Mér skilst annars að Svíarnir hafi viljað byrja seinna til að spara kostnað.“

Það var pressa á Alfreð strax fyrir mót því þá kom meðal annars fram hjá formanni þýska sambandsins að staða Alfreðs væri ekki örugg. Ekki beint þægilegt veganesti inn í mótið en það truflaði Alfreð lítið.

Getur hver sem er sagst vera sérfræðingur

„Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman. Ég er með samning til 2027 og hann er þannig að þeir geta sagt mér upp hvenær sem er en þá verða þeir að borga upp samninginn. Ég get líka sagt upp hvenær sem er og byrjað daginn eftir með annarri þjóð. Ég er að vinna fyrir þetta lið sem ég hef verið að byggja upp frá grunni. Þannig að ég er ekki að velta mér upp úr þessu,“ segir Alfreð en hann átti samtal við formanninn sem vildi meina að orð hans hefðu verið tekin úr samhengi.

„Umfjöllunin í Þýskalandi hefur samt verið að breytast mikið. Þetta er allt einhverjir áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur sem vita ekkert um þetta. Það er nóg að kaupa sér myndavél og hljóðnema og þykjast vera sérfræðingur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×