Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Lovísa Arnardóttir skrifar 1. febrúar 2026 16:06 Starfsemin verður flutt formlega í sumar. Samsett Framkvæmdastýra Ljóssins segir starfsfólk og skjólstæðinga himinlifandi með flutninga Ljóssins. Það verði meira rými og betri aðstaða fyrir alla þjónustu. Langtímamarkmið sé að kaupa annað húsnæði en til að byrja með leigi þau húsnæðið að Gylfaflöt.
Endurhæfingarmiðstöðin Ljósið mun á árinu flytja starfsemi sína í nýtt og mun rýmra húsnæði að Gylfaflöt í Grafarvogi. Á tuttugu árum hefur skjólstæðingum Ljóssins fjölgað úr 200 í 1.500 á einu ári. Nýtt húsnæði er 1.300 fermetrar með möguleika á stækkun upp í 1.700 fermetra til framtíðar. Austurmiðstöð var áður rekin í húsnæðinu en hún er nú flutt á Bíldshöfða. „Ljósið er 360 gráðu heildræn endurhæfing fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein. Við erum með mjög stóran hóp af fagfólki. Fólk kemur hingað í persónuleg viðtöl. Það koma líka í fjölskylduviðtöl, ýmsa fræðslu og námskeið. Þau koma í handverk, í tækjaþjálfun, hóptímaþjálfun og í gönguhópa. Þannig að þetta er alveg ótrúlega fjölbreytt og mikið starf, bæði fyrir þá sem greinast og eins fyrir aðstandendur þeirra líka, segir Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins. „Við erum búin að vera að leita að hentugu húsnæði í nokkur ár. Þrengslin voru orðin ansi mikil hjá okkur, hafa verið. Þeim fer fjölgandi, fólkinu sem þarf á okkar þjónustu að halda, þannig að þetta eru alveg gífurleg tímamót.“ Hún segir gott aðgengi að nýju húsnæði, næg bílastæði og grænt útivistarsvæði í næsta nágrenni. Ráðast þurfi þó í töluverðar breytingar á húsnæðinu og því gert ráð fyrir flutningum síðar á árinu. „Við erum að fá húsið afhent núna 1. febrúar og það eru komnir verktakar í að laga húsnæðið. Það þarf að laga töluvert mikið að innan og þetta getur tekið fjóra, fimm mánuði, kannski sex. Við erum voða bjartsýn með þetta allt saman.“ Hún segir staðsetninguna henta vel. „Þetta er bara í fallegu hverfi og húsnæðið er hentugt, vel úr garði gert, vel byggt og vel haldið utan um þetta húsnæði. Það skiptir okkur ótrúlega miklu máli og við ætlum náttúrulega að halda í þennan heimilislega og góða anda sem er í Ljósinu. Við færum hann bara með okkur frá Langholtsveginum og upp á Gylfaflötina.“ Hún segir standa til að selja eign þeirra við Langholtsveg og leigja til að byrja með á Gylfaflötinni. Gífurleg breyting „Breytingin verður alveg gífurleg, sérstaklega öll aðstaða. Fleiri viðtalsherbergi, fleiri fræðsluherbergi og allt stærra og rýmra varðandi þjálfunina. Betri aðstaða til þjálfunar og aðstaða miklu betri. Eldhúsið stærra og miklu rýmra um fólkið okkar.“ Erna segir að til lengri tíma sjái þau fyrir sér að kaupa annað húsnæði en þau þurfi að safna fyrir því eins og þau gerðu með húsnæðið á Langholtsveginum. Starfsemin sé að fullu fjármögnuð þetta árið en þeirra draumur sé að gera samning til lengri tíma við Sjúkratryggingar en til eins árs. „Allt okkar söfnunarfé hefur farið í það að sjá til þess að við getum farið í stærra og betra húsnæði. Ef við seljum á Langholtsveginum þá fer það bara í sjóð til að geta eignast nýtt húsnæði í framtíðinni.“ Hún segir starfsfólk og skjólstæðinga himinlifandi með þetta. „Það er bjart fram undan í ljósinu og hérna og við erum alveg full af tilhlökkun til að flytja í sumar.“
Krabbamein Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Mest lesið Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Erlent Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Erlent Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Erlent „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Erlent Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Innlent Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent Fleiri fréttir Glæsibrú á Vestfjörðum boðin út í næsta mánuði „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Fjölgun áminninga, harkalegar uppsagnir og uppnefni eftir að mörkin voru færð Harmi slegin vegna fjölda tilkynninga af leikskólum Ráðherra í áfalli, rógsherferð og æsispennandi kosningar Ester Bíbí leiðir Vinstrið í Hafnarfirði Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Sjá meira