Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. janúar 2026 13:30 PSG vann Meistaradeildina á síðasta tímabili en þarf að fara erfiða leið að úrslitaleiknum í ár. EPA/Alessio Marini Eftir ótrúlega átján leikja lokaumferð í Meistaradeildinni liggur nú ljóst fyrir hvaða lið gætu mæst í umspilinu og sextán liða úrslitum, en það verður ekki dregið fyrr en á morgun.
Enska úrvalsdeildin á fimm fulltrúa í efstu átta sætunum, sem fara beint í sextán liða úrslit. Arsenal tryggði sér toppsætið og þar með seinni heimaleikinn í sextán liða og átta liða úrslitum. Liverpool, Tottenham, Chelsea og Manchester City náðu einnig inn í topp átta ásamt Barcelona, Bayern og Sporting. Þau sleppa öll við umspilið. Lokastaðan í Meistaradeildinni 2025-26. SÝN SPORT Newcastle og PSG gerðu jafntefli í gær en annað hvort liðið hefði komist í topp átta með sigri. Þess í stað endaði PSG í 11. sæti og Newcastle í 12. sæti og munu því fara í umspil gegn annað hvort AS Monaco (21. sæti) eða Qarabag (22. sæti). Benfica og Bodö/Glimt tryggðu sig áfram með mjög dramatískum hætti, með sitt hvorum sigrinum gegn Real Madrid og Atlético Madrid. Dregið verður í umspil og sextán liða úrslitum í höfuðstöðvum UEFA á morgun, föstudag klukkan 11:00. Liðin sem mætast í umspili og mótherjar þeirra í sextán liða úrslitum.SÝN SPORT Benfica og Bodö urðu síðustu liðin inn í umspilið, í 23. og 24. sæti, og munu mæta liðunum í 9. eða 10. sæti, Inter eða Real Madrid. Madrídingar eru eflaust ekki spenntir fyrir því að hitta Benfica aftur en hér fyrir neðan má sjá alla möguleika í umspili og sextán liða úrslitum. AS Monaco (21.) eða Qarabağ (22.) gegn Paris Saint-Germain (15.) eða Newcastle United (13.) Sigurliðin mæta Barcelona eða Chelsea í 16-liða úrslitumClub Brugge (19.) eða Galatasaray (20.) gegn Juventus (11.) eða Atlético Madrid (12.)Sigurliðin mæta Liverpool eða Tottenham Hotspur í 16-liða úrslitumBodø/Glimt (23.) eða Benfica (24.) gegn Real Madrid (9.) eða Inter (10.)Sigurliðin mæta Sporting CP eða Manchester City í 16-liða úrslitumBorussia Dortmund (17.) eða Olympiacos (18.) gegn Atalanta (14.) eða Bayer Leverkusen (16.) Sigurliðin mæta Arsenal eða Bayern München í 16-liða úrslitumEf lengra er horft fram tímann, fram í sextán liða úrslit, eru margir spennandi möguleikar í stöðunni. Bayern Munchen gæti mætt Borussia Dortmund eða Bayer Leverkusen, Liverpool eða Tottenham gætu mætt Atlético Madrid eða Juventus, Manchester City gæti mætt Inter eða Real Madrid, Chelsea eða Barcelona gætu mætt Newcastle eða PSG, en það eru auðvitað allt getgátur að svo stöddu.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Sjá meira