Innlent

Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sjö hvolpar lifðu ekki af eldsvoðann en leit stendur yfir af einum til viðbótar.
Sjö hvolpar lifðu ekki af eldsvoðann en leit stendur yfir af einum til viðbótar. Vísir/Anton Brink

Íbúa í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans eftir eldsvoða sem kom upp í íbúð í húsinu í gærkvöldi. Sjö hundar drápust í eldsvoðanum.

Það var klukkan 22:54 í gærkvöldi sem lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um eld í fjölbýlishúsi í götunni Vatnsholti. Lögregla, sjúkra- og slökkvilið fóru á vettvang á hæsta forgangi.

Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang í gær mátti sjá mikinn eld koma frá íbúð á fyrstu hæð hússins. Fjölbýlishúsið er á tveimur hæðum með sex íbúðum. Kona sem býr í húsinu var enn inni en aðrir  íbúar komnir út. Konan fannst skömmu síðar í íbúð sinni og var flutt með sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Hún liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans og er haldið sofandi.

Aðrir íbúar, 15 talsins, voru fluttir á öruggan stað skammt frá vettvangi þar sem þau fengu stuðning og liðsinni frá starfsmönnum Rauða Krossins. Þar var þeim veitt áfallahjálp. Flestir gátu leitað skjóls í nótt hjá ættingjum en Rauði krossinn á Suðurnesjum aðstoðaði aðra með næturgistingu. Fólk hefur ekki getað snúið aftur til síns heima því enn á eftir að reykræsta aðrar íbúðir.

Vettvangsrannsókn er í gangi hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sjö hundar sem voru í íbúðinni drápust í eldsvoðanum, einn lifði og einn er ófundinn samkvæmt tilkynningu lögreglu. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×