Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Eiður Þór Árnason skrifar 25. janúar 2026 23:19 Verkefnið í Ytri-Hraundal hófst í maí á síðasta ári. Fuglavernd/Jóhannes Guðbrandsson Stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal var fjarlægð í desember á síðasta ári í því augnamiði að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska. Einnig á aðgerðin að gera sjóbirtingi kleift að ferðast upp ána.
Rannsóknir hófust á svæðinu í byrjun maí 2025 og var alfarið búið að fjarlægja stífluna um sjö mánuðum síðar. Stíflan var reist árið 1958 til að framleiða raforku fyrir sveitabæ í Ytri-Hraundal en hún hafði ekki verið notuð í fleiri áratugi, að sögn sjóðsins Open Rivers Programme sem styrkti verkefnið. Náttúruverndarsamtökin Fuglavernd stóðu fyrir framkvæmdinni. Stíflan er sögð hafa verið eina hindrunin sem hamlaði flæði árinnar til sjávar. Vonast sé til að aðgerðin muni stækka búsvæði Atlantshafslax og sjóbirtings og auka endurnýjun stofnsins. Fram kemur í tilkynningu frá náttúruverndarsamtökunum Fuglavernd að verkefnið hafi verið unnið í samvinnu við Land og skóg, Hafrannsóknarstofnun og Breska fuglaverndarfélagið (RSPB). Stíflan áður en hún var fjarlægð.Náttúruvernd/Jóhannes Guðbrandsson Tafðist vegna rigninga „Framkvæmdin gekk vel en hún tafðist eilítið vegna mikilla rigninga og þurfti að bíða eftir frosti svo þungar vinnuvélar kæmust alla leið á framkvæmdarsvæðið. Það kom á óvart hve fjarlægja þurfti mikið af steinsteypu sem kom í ljós undir torfgarðinum út frá stíflunni.“ Open Rivers Programme styður framkvæmdir sem miða að því að fjarlægja smærri manngerðar stíflur í árfarvegum og lækjum sem hafa áhrif á vatnasvið og líffræðilegan fjölbreytileika. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn styrkir Fuglavernd í þessum tilgangi. Að sögn forsvarsmanna samtakanna réðu þau sérfræðinga frá skoska fyrirtækinu CBEC til verksins sem sérhæfi sig í náttúrumiðuðum lausnum við endurheimt árfarvega. Þá segir að vatnsstreymi hafi verið mælt fyrir og eftir framkvæmdina og passað upp á að varna rofi í árbökkum eftir að stíflan var fjarlægð, að því er fram kemur í tilkynningu.
Umhverfismál Fuglar Borgarbyggð Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira