Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. janúar 2026 14:33 Quinten Timber og Robin van Persie hafa ekki náð vel saman. Marcel van Dorst/EYE4images/NurPhoto via Getty Images Quinten Timber hefur verið seldur frá hollenska félaginu Feyenoord til franska félagsins Marseille, eftir að hafa lent í opinberum erjum við þjálfarann Robin van Persie.
Timber, sem á tvíburabróður í vörninni hjá Arsenal að nafni Jurrien, var fyrirliði Feyenoord á síðasta tímabili en hefur alls ekki átt samleið með van Persie, sem tók við störfum fyrir tímabilið. Þjálfarinn svipti hann fyrirliðabandinu og hefur sett Timber út í kuldann. Eftir síðasta deildarleik var van Persie spurður hvers vegna Timber væri ekki í hóp og hann svaraði á þá leið að vinnusemi hans á æfingum og viðhorf til hópsins væri ekki nógu gott. „Mér finnst leiðinlegt að þetta þurfi að vera svona. Þetta hefur gerst nokkrum sinnum, að þjálfarinn verndi ekki leikmanninn. Að þessu sinni lendi ég því, enn og aftur. Ég hef mín mörk“ svaraði Timber þegar hann var spurður út í ummælin. Hollenskir miðlar hafa svo í vikunni greint frá enn meiri erjum þeirra á milli, sem enduðu með hávaðarifrildi í klefanum. Timber hefur nú verið seldur til Marseille á hálfgerðu gjafaverði, eða um 4.5 milljónir evra, þegar markaðsvirði hans á Transfermarkt er 25 milljónir evra. Feyenoord er í öðru sæti hollensku úrvalsdeildarinnar, en heilum sextán stigum á eftir toppliði PSV. Marseille er í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar, sex og sjö stigum frá PSG og Lens.
Hollenski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira