„Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Stefán Árni Pálsson skrifar 23. janúar 2026 14:01 Inga Lind er dugleg að hreyfa sig í hverri viku. Á þessum tíma eru margir að spá í að byrja í ræktinni og fara að hreyfa sig. Janúar er tíminn þar sem mjög margir fara af stað og ákveða að hreyfa sig meira. Og flestir horfa orðið til heildrænnar heilsu með möguleika á fjölbreyttri hreyfingu og á sama tíma hollum mat og einnig góðri slökun.
Og það virðist vera gríðarlega vinsælt hjá konum að vera í styrktarþjálfun. Vala Matt hitti Ingu Lind Karlsdóttur í World Class Laugum í vikunni og ræddi við hana um líkamsrækt. Maður að nafni Teitur er hennar einkaþjálfari og lætur hann hana hafa fyrir hlutunum. „Ég er hreinlega að gera bara allt eins og hann segir. Suma daga er maður að einbeita sér að fótum og aðra daga einbeitum við okkur að efri hlutanum, baki, axlir, höndum og allt þetta. Ég er sem sagt er með minn mann í þessu til þess að passa líka bara upp á að ég sé að beita mér rétt. En mig langar líka samt að segja að ég var komin með verki og varla var það aldurinn að segja til sín. Þá fór ég í pilates hjá henni Röggu Sveins og hún er æðisleg og það er mjög gott líka til þess að svona rétta úr sér og fá teygjur,“ segir Inga. Inga Lind stunda tennis. En hefur æfingaprógramið breyst eitthvað í gegnum árin? „Það er náttúrulega bara kannski svolítið aldurstengt, en ég hef alltaf verið að lyfta eitthvað. Einu sinni var þetta að komast í kjólinn fyrir jólin og líta vel út í bikiníinu þegar sumarið skellur á. Núna finnst mér það ekki skipta neinu máli. Það eina sem skiptir máli er að maður er að sigla inn í seinni helminginn. Mig langar bara að vera upprétt og sterk þegar ég eldist, sem ég vona að ég fái að gera. Og líkurnar eru nú með manni að maður fái að ná svona þokkalega háum aldri.“ Hafdís Jónsdóttir eigandi World Clasd segir að gott trix sé að pakka ofan í líkamsræktartöskuna deginum áður. „Og hafa hana eiginlega bara staðsetta við útidyrnar þannig að maður hálfpartinn dettur um hana. Þannig að maður verður að grípa hana með sér. Og verið algjörlega búinn að ákveða hvenær þú ætlar að fara á æfingu og hvert þú ætlar að fara. Ef þú ert að koma að byrja, þá bara að gera ráð fyrir að vera svona 15-20 mínútur. Svo verður maður alltaf pínulítið lengur þegar maður er kominn. En það er bara gott að hugsa það þannig og þetta er svolítið eins og þegar maður vaknar og hugsar, ég verð að bursta tennurnar.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Heilsa Líkamsræktarstöðvar Vala Matt Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Lífið samstarf Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Fleiri fréttir Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Sjá meira