Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. janúar 2026 08:41 Macron hélt ræðu á World Economic Forum í Davos í gær og vakti athygli fyrir að vera með gæjaleg sólgleraugu. Getty/Anadolu/Harun Ozalp Það er óhætt að segja að Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafi vakið nokkra athygli í Davos, þar sem hann hefur skartað einstaklega töffaralegum flugstjórasólgleraugum með bláum speglaglerjum.
Ástæðan er þó ekki eintómur töffaraskapur heldur hefur verið greint frá því í frönskum miðlum að Macron sé með sprungna æð í öðru auganu. Er forsetinn sagður hafa ákveðið að bera gleraugun í stað þess að koma fram með annað augað rautt, bólgið og ófrýnilegt. Samkvæmt BBC var Macron ekki með gleraugun þegar hann ávarpaði hermenn í suðurhluta Frakklands í síðustu viku og baðst þá afsökunar á útliti sínu. Gantaðist hann með ástandið á sér og sagðist vera með „l'oeil du tigre“, eða „auga tígursins“, sem er tilvísun í lag rokkhljómsveitarinnar Survivor sem hefur löngum verið tengt við kvikmyndina Rocky III frá 1982. Æðaslit getur orðið við hraustlegan hnerra eða hósta, nú eða pot í augað. Þeir sem þjást af háum blóðþrýstingi eða sykursýki eru í aukinni áhættu. Ástandið er ekki hættulegt og lagast yfirleitt á um tveimur vikum. Engin mynd fannst af rauðeygðum Macron í myndasöfnum en svo skemmtilega vill til að Getty á myndina hér fyrir neðan af Macron með Karli III Bretakonungi, þar sem síðarnefndi virðist einmitt þjást af æðasliti í auga. Getty/WPA/Dylan Martinez
Frakkland Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira