Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Samúel Karl Ólason skrifar 20. janúar 2026 16:55 Fæddum börnum fækkar ár eftir ár í Kína. AP/Andy Wong Í Kína fæddust 7,92 milljónir barna í fyrra. Það er 1,62 milljónum færri börn en fæddust árið 2024 og markar það um sautján prósenta fækkun. Samkvæmt opinberum tölum í Kína hefur fæddum börnum fækkað á hverju ári mörg ár í röð.
Í heildina voru Kínverjar 1,404 milljarðar í fyrra en þeim fækkað um þrjár milljónir og hefur fækkað í fjögur ár í röð. Áratugur er liðinn síðan Kommúnistastjórn Kína felldi úr gildi stefnuna um eitt barn á hverja fjölskyldu en hún var í gildi frá 1979 til 2015. Þá máttu fjölskyldur eignast tvö börn en árið 2021 var hámarkið hækkað í þrjú börn á fjölskyldu. Síðan þá hafa yfirvöld gripið til ýmissa ráða til að reyna að fá fjölskyldur til að eignast fleiri börn, eins og til dæmis að auka fjárhagsstuðning og leggja skatt á smokka. Þrátt fyrir það hefur fæðingartíðni ekki aukist en á síðasta ári fæddust 5,63 börn á hverja þúsund íbúa og hefur sú tíðni ekki verið eins lág síðan mælingar hófust, árið 1949, samkvæmt AP fréttaveitunni. Fréttaveitan segir að flestar fjölskyldur vísi til þess að kostnaður sé of hár og álagið of mikið í kínversku samfélagi, þegar kemur að helstu ástæðum þess að fólk eignast ekki fleiri börn. Nú hefur dregið úr kaupmætti heimila í Kína á undanförnum árum. Sífellt eldri þjóð Yfirvöld í Kína gáfu síðast út tölfræði um börn á konur árið 2020 og var hlutfallið þá 1,3 barn á hverja konu. AP segir að sérfræðingar áætli að hlutfallið sé komið í um einn. Til að viðhalda íbúafjölda þarf hlutfallið að vera í 2,1. Um 323 milljónir Kínverja eru eldri en sextíu ára en það samsvarar um 23 prósentum af allri þjóðinni. Fjöldinn hefur aukist töluvert á undanförnum árum og er búist við því að sú þróun muni halda áfram. Á sama tíma eru ráðamenn í Kína að reyna að snúa hagkerfi Kína frá því að keyra á framleiðslu yfir í það að snúa enn frekar að neyslu og framleiðslu á hátæknivörum.
Kína Mannfjöldi Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira