Að brjóta glerþakið: lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir Anna Lára Steindal skrifar 20. janúar 2026 12:17 Lýðræði byggir á þeirri grundvallarhugmynd að öll hafi rödd. Samt er staðreyndin sú að víða í Evrópu – þar á meðal á íslandi – er fólki með þroskahömlun enn haldið utan við pólitískt vald, ákvarðanatöku og áhrif. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er brýnt að horfast í augu við þessa staðreynd og spyrja: hver fá raunverulega að taka þátt? Inclusion Europe, regnhlífarsamtök sem vinna að hagsmunum og réttindum 20 milljóna Evrópubúa með þroskahömlun sendu nýlega frá sér skýrsluna Inclusion Indicators 2025. Þar er varpað skýru ljósi á kerfisbundnar hindranir sem mæta fólki með þroskahömlun og skyldar fatlanir. Hindranir í vegi þátttöku í stjórnmálum Í skýrslunni kemur fram að í 14 Evrópulöndum er fólki með þroskahömlun meinað að bjóða sig fram í kosningum og í 13 löndum má svipta fólk kosningarétti á grundvelli föltunar. Í 29 löndum er löghæfi fólks með þroskahömlun enn skert að hluta eða öllu leyti. Þótt Ísland standi betur að vígi hvað réttindi varðar hefur ítrekað teiknast upp önnur, ekki síður alvarleg mynd, við framkvæmd kosninga: skortur á aðgengi, stuðningi og raunverulegum tækifærum útilokar fólk með þroskahömlun frá þátttöku í stjórnmálum og jafnvel því að nýta kosningarétt sinn. Viðhorf skipta máli. Rótgrónir fordómar sem fela í sér vantrú á hæfni og getu fólks með þroskahömlun og skyldar fatlanir leiða til þess að stjórnmálaflokkar, sveitarfélög og stofnanir gera sjaldan ráð fyrir fólki með þroskahömlun sem virkum þátttakendum í lýðræðinu. Upplýsingar tengdar stjórnmálum eru sjaldnast aðgengilegar – stefnur stjórnmálaflokka, fundir og umræður eru ekki settar fram á auðlesnu máli og stuðningur við ákvarðanatöku er undantekning frekar en regla. Allt er hægt – ef viljinn er fyrir hendi Þrátt fyrir hindranir eru til skýr dæmi um árangur. Í nokkrum Evrópulöndum hafa einstaklingar með þroskahömlun verið kjörnir til trúnaðarstarfa, með viðeigandi stuðningi og aðlögun. Þar má nefna Mar Galcerán á Spáni, Éléonore Laloux í Frakklandi og Nicolas Vanwinsen í Belgíu. Öll hafa þau gegnt pólitískum embættum og öll eru þau með downs heilkenni. Þessi dæmi sýna að skortur á þátttöku snýst ekki um getu heldur aðstæður og tækifæri. Áskorun til íslenskra sveitarfélaga Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga skorar Þroskahjálp á stjórnmálaflokka og sveitarfélög að axla ábyrgð. Lýðræðisleg þátttaka fólks með þroskahömlun má ekki vera táknræn heldur eiga allir rétt á raunverulegum tækifærum til þátttöku. Við köllum eftir: aðgengilegri framkvæmd kosninga, þar á meðal auðlesnu efni og stuðningi við ákvarðanatöku, raunverulegum tækifærum fólks með þroskahömlun til að bjóða sig fram og gegna trúnaðarstörfum, virku samráði þar sem rödd fólks með þroskahömlun fær vægi. Lýðræði sem útilokar er ekki lýðræði. Að brjóta glerþakið er ekki aðeins réttlætismál fyrir fámennan hóp – það er prófsteinn á það hversu alvarlega við tökum mannréttindi, jafnrétti og lýðræðisleg gildi í reynd. Hér má lesa skýrsluna Inclusion Indicators 2025: https://www.inclusion.eu/inclusion-indicators-2025-key-findings Höfundur er framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar