Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Aron Guðmundsson skrifar 17. janúar 2026 17:30 Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar. Vísir/Diego Þróttur Reykjavík gerði sér lítið fyrir og skellti KR 5-1 í leik liðanna í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta á KR-vellinum í dag.
Þróttarar, sem háðu harða baráttu um að komast upp í Bestu deildina á síðasta tímabili en náðu ekki því takmarki sínu, höfðu byrjað Reykjavíkurmótið af krafti með 3-1 sigri gegn Val og í dag hélt sigurganga liðsins í mótinu áfram. KR hafði á sama tíma lagt Fylki að velli en þurftu í dag að sætta sig við tap á móti sprækum Þrótturum. Tryggvi Snær Geirsson kom Þrótturum yfir í leik dagsins með marki á 19.mínútu og áður en fyrri hálfleikur rann sitt skeið tókst Adam Árna Róbertssyni að tvöfalda forystu gestanna úr Laugardalnum. Aron Snær Ingason bætti við þriðja marki Þróttara á 55.mínútu áður en að KR-ingar skoruðu sjálfsmark og var staðan því orðin 4-0 Þrótturum í vil. Róberti Elís Hlynssyni tókst að klóra í bakkann fyrir heimamenn á 75.mínútu en Eiríkur Þorsteinn Blöndal svaraði því með því að kóróna flottan leik Þróttara með fimmta marki liðsins og þar með innsigla 5-1 sigur. Sigurinn sér til þess að Þróttur Reykajvík er á toppi B-riðils Reykjavíkurmótsins með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína.
Þróttur Reykjavík KR Lengjudeild karla Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Enski boltinn Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Handbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fótbolti Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Handbolti Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Fótbolti Fleiri fréttir Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Sjá meira