„Höllin var æðisleg“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2026 19:29 Janus Daði Smárason var mjög sáttur með stuðninginn í kvöld og líka glaður með leikinn og að mótið sé byrjað. Getty/Sanjin Strukic Janus Daði Smárason átti mjög góðan leik með íslenska landsliðinu í kvöld og var valinn besti maður leiksins af mótshöldurum. Janus Daði kom inn af bekknum og skilaði átta mörkum úr níu skotum og bætti við fimm stoðsendingum. „
Það var gaman að byrja loksins enda búinn að bíða lengi. Höllin var æðisleg og það var ótrúlegt að sjá alla Íslendinga í stúkunni. Þetta gefur okkur mikið og mér fannst þetta vera sérstakt strax í þjóðsöngnum. Ég er bara glaður,“ sagði Janus Daði eftir leikinn. Janus kom hungraður inn af bekknum í kvöld. „Ég held að við séum það allir. Ég er nú að fara núna á níunda stórmótið og það er því vonandi að maður hérna sé með smá rútínu og geti hjálpað liðinu,“ sagði Janus Daði. Hefði viljað spila klukkan tvö í dag „Ég hefði viljað spila leikinn klukkan tvö í dag. Ég var búinn að bíða lengi og þetta var leiðinlegur dagur að þurfa að bíða svona óþreyjufullur. Nú er þetta bara komið. Tvö stig og við getum farið að hvíla okkur aðeins eftir þennan leik og undirbúa okkur fyrir Pólverja,“ sagði Janus Daði. Leikurinn voru mikil hlaup gegn óhefðbundnum varnarleik Ítalanna. „Ég vil hrósa Ítölunum líka. Þeir bara pumpuðu allan leikinn með þessum árásum og ég lét ná mér þarna í lokin. Það var fínt að komast bara inn á völlinn, spila, fíla þetta og nú þurfum við bara að bæta okkur frá leik til leiks,“ sagði Janus Daði. Voru búnir að æfa þetta mikið Íslenska liðið prófaði að spila fjórir fyrir utan á móti Ítölunum sem var krókur á móti bragði gegn liði sem er spilað þetta mikið sjálft. Hefur Janus spilað slíkt mikið áður? „Þetta er náttúrulega aðeins öðruvísi og þú ert ekki vanur að vera akkúrat í þessum aðstæðum þar sem leikmennirnir eru svona stilltir upp. Við erum nú fljótir að venjast því og vorum náttúrulega að æfa þetta mikið núna fyrir leik,“ sagði Janus Daði.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Uppeldiskerfi argentínska fótboltans níðist á börnum Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira