Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Atli Ísleifsson skrifar 16. janúar 2026 10:07 Erla og Kolbeinn Tumi hafa unnið þétt saman og meðal annars stýrt Kryddsíld saman undanfarin ár Vísir Erla Björg Gunnarsdóttir hefur sagt upp störfum sem ritstjóri fréttastofu Sýnar en hún hefur gegnt stöðunni í hálft fimmta ár. Formleg starfslok hafa ekki farið fram en Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri mun taka við stjórnartaumunum á fréttastofunni frá og með deginum í dag.
Erla Björg greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að segja upp starfi sínu. Hún hefur verið ritstjóri fréttastofu frá árinu 2021 en fyrir það var hún fréttastjóri Stöðvar 2 og hefur starfað á öllum miðlum fréttastofu í hinum ýmsu hlutverkum frá árinu 2013. Erla Björg segist vera fyrst og fremst þakklát á þessum tímamótum, fyrir öll tækifærin á síðustu þrettán árum en ekki síst fyrir fallega vináttu. „Það hefur verið einstakt að vera hluti af þessum magnaða hópi sem er á fréttagólfinu, að fá að sjá fólk vaxa og dafna í starfi sínu, takast á við erfið mál með samheldni að vopni og fagna saman litlum og stórum sigrum. Því fylgir ótrúlegur kraftur sem hefur fleytt mér í gegnum ótal áskoranir í rekstri fréttastofunnar sem tekur sífelldum breytingum í takt við breytingar í yfirstjórn og stefnu félagsins. Nú er aftur á móti kominn tími til að annar taki við keflinu en ég mun alltaf búa að þessum krafti og tek hann með mér inn í næsta óskrifaða kafla,“ segir Erla Björg. Eftirsjá en alls engin uppgjöf Kolbeinn Tumi tók við stöðu fréttastjóra Vísis árið 2014 og varð fréttastjóri fréttastofunnar allrar árið 2021 á sama tíma og Erla Björg tók við stöðu ritstjóra. Hann segir Erlu hafa verið afar farsælan ritstjóra sem verði mikil eftirsjá af. Margt lykilfólk hafi komið og farið í gegnum árin en sem betur fer alltaf sýnt sig að enginn sé ómissandi þó mikilvægur sé. „Það verða mikil viðbrigði að hitta ekki Erlu daglega á fréttagólfinu en nú er komið að tímamótum. Fréttastofan er skipuð afar öflugu fólki sem mun halda áfram að gera það sem það gerir best. Að flytja fólkinu í landinu traustar fréttir alla daga ársins,“ segir Kolbeinn Tumi. Þótt Erla hverfi af fréttastofunni losni hún ekki við fréttabakteríuna. „Hún mun vafalítið halda áfram að gauka reglulega að okkur fréttnæmu efni eins og margir af okkar gömlu og góðu kollegum.“ Kolbeinn Tumi er með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með meistaragráðu í burðarþolsfræði frá University of Washington í Bandaríkjunum og kennsluréttindi í framhaldsskóla. Hann starfaði sem verkfræðingur hér heima og vestan hafs áður en hann hóf störf í fjölmiðlum árið 2012. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Fjölmiðlar Vistaskipti Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira