„Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Hólmfríður Gísladóttir og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 16. janúar 2026 07:39 Karoline Leavitt og Lars Løkke Rasmussen virðast alls ekki sammála um það hvert hlutverk starfshópsins verður sem ákveðið var að setja á fót eftir fundinn í Washington í vikunni. EPA Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, sagði í gær að ef Bandaríkin virtu ekki yfirráðarétt Danmerkur yfir Grænlandi og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga yrði nýskipaður starfshópur um framtíð Grænlands líklega skammlífur.
Ummælin lét Rasmussen falla í yfirlýsingu eftir að greint var frá því að Karoline Leavitt, fjömiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði að sendinefndin frá Danmörku og Grænlandi sem fundaði með fulltrúum Bandaríkjanna í Washington DC í vikunni hefði samþykkt að halda áfram viðræðum um það hvernig Bandaríkin myndu eignast Grænland. Túlka hlutverk starfshópsins á gjörólíkan hátt Það ætlaði allt um koll að keyra í umfjöllun danskra fjölmiðla um málið í gær, eftir að Leavitt lét ummælin falla í samtali við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. „Fundurinn var gagnlegur. Þetta var góður fundur og á honum samþykktu báðar hliðar að setja á starfshóp sem samanstendur af einstaklingum sem munu halda áfram að eiga viðræður um tæknilega útfærslu yfirtökunnar á Grænlandi,“ sagði Leavitt meðal annars. Við þessu brást Løkke við í samtali við danska ríkisútvarpið DR fljótlega í framhaldinu. „Þetta er ekki það sem við samþykktum,“ sagði Løkke. Það sé þvert á móti hans skilningur að markmiðið með starfshópnum sé að reyna að finna sameiginlega leið fram á við. Starfshópurinn eigi að einblína bæði á áhyggjur Bandaríkjamanna af öryggismálum, en á sama tíma virða mörk Danska konungsríkisins sem hafi sett skýra „rauða línu“ hvað varðar yfirráð á Grænlandi. Þessa ólíku túlkun á hlutverki starfshópsins segja greinendur undirstrika hversu flóknar viðræður eru framundan. Ellefu bandarískir þingmenn heimsækja danska þingið Á sama tíma og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvergi haggast í afstöðu sinni um að segjast þurfa að eignast Grænland, sækja bandarískir þingmenn danska Folketinget heim í dag. Hópur gestanna samanstendur af bandarískum þingmönnum úr báðum þingdeildum en í heimsókninni til danska þingsins er markmiðið að vinna að samstarfi á milli Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna. Bandaríska sendinefndin telur ellefu þingmenn. Það eru öldungadeildarþingmennirnir Chris Coons, Dick Durbin, Peter Welch og Jeanne Shaheen úr röðum Demókrata, og Repúblikanarnir Thom Tillis og Lisa Murkowski. Þá eru með í för fulltrúadeildarþingmennirnir Steny Hoyer, Gregory Meeks, Madeleine Dean, Sara Jacobs og Sarah McBride sem öll eru Demókratar. Óhætt er að segja að þessi hópur þingmanna, sem koma úr báðum flokkum, sé ekki á sama máli og Trump hvað varðar eignarhald Bandaríkjanna á Grænlandi. „Ég held að þau vilji fyrst og fremst gjarnan senda merki um það til dönsku ríkisstjórnarinnar og til annarra NATO-ríkja, að það eru önnur Bandaríki. Og kannski reyna að skapa ró og segja: Við höfum að einhverju leyti ráð um það hvað Bandaríkjaforsetinn gerir,“ hefur DR eftir Niels Bjerre-Poulsen, lektor í Bandaríkjafræðum við Syddansk Universitet.
Bandaríkin Danmörk Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Innlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Fleiri fréttir Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Sjá meira