Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. janúar 2026 16:17 Taylor Momsen og Jim Carrey í kvikmyndinni Þegar trölli stal jólunum árið 2000. Getty Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem byggir á sígildu ævintýri Dr. Seuss. Söngleikurinn verður frumsýndur á stóra sviðinu í nóvember, Valur Freyr Einarsson leikstýrir honum og verður hulunni svipt af leikhópnum á næstunni.
Þegar Trölli stal jólunum kom upprunalega út sem barnabók í bundnu máli eftir Dr. Seuss árið 1957 og naut strax mikilla vinsælda. Sagan segir frá hinum einmana Trölla sem þolir ekki jólin en í næsta nágrenni halda menn þau hátíðleg með mat og drykk, söng og gjöfum. Eitt árið fær Trölli nóg og ákveður að stela jólunum og öllu sem þeim viðkemur. Sagan hefur verið aðlöguð að skjánum margs sinnis en þekktasta aðlögunin er kvikmyndin How the Grinch stole Christmas (2000) í leikstjórn Ron Howard með stórstjörnunni Jim Carrey í hlutverki Trölla. Íslendingar þekkja söguna vel, kvikmyndin hefur fyrir löngu orðið hluti af jólunum á mörgum heimilum og bókin var þýdd á íslensku af Þorsteini Valdimarssyni árið 1974 og var svo endurútgefin árið 2024. Hérlendis þekkti þó enginn söguna jafnvel og Stefán Karl Stefánsson heitinn sem fór með hlutverk Trölla í söngleiknum á leikferð um Bandaríkin á árunum 2008 til 2015. „Það er ekkert sem kemur fólki í meira jólaskap en að koma í leikhúsið yfir hátíðarnar og sjá dásamlega fjölskyldu-jólasýningu. Þegar Trölli stal jólunum er geggjað jólaævintýri sem allir þekkja og ég get ekki beðið eftir næstu jólum,“ segir Egill Heiðar Anton Pálsson, Borgarleikhússtjóri. Jim Carrey var ansi góður Trölli. Egill segir jafnframt að jólaundirbúningurinn sé þegar hafinn í Borgarleikhúsinu þótt það sé nærri ár til jóla. Leikstjórn söngleiksins verður í höndum Vals Freys Einarssonar og verðu hulunni svipt af leikhópnum á næstu vikum. Stór barnahópur verður einnig með í sýningunni og verða haldnar leikprufur fyrir börn í vor. Þegar Trölli stal jólunum verður frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins í nóvember 2026 og verður það Evrópufrumsýning á söngleiknum.
Leikhús Borgarleikhúsið Hollywood Börn og uppeldi Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Fleiri fréttir Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira