Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. janúar 2026 07:01 Frá leigubílum við Keflavíkurflugvöll. Vísir/Anton Brink Það er mat forsvarsmanna Isavia á Keflavíkurflugvelli að þjónusta leigubíla gangi nú mun betur fyrir sig en á fyrri hluta síðasta árs. Síðasta hálfa árið hafi þurft að meina sex leigubílstjórum um aðgang að flugstöðinni í hverjum mánuði að meðaltali en árið á undan voru þeir um þrettán á mánuði.
Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Guðjóni Helgasyni upplýsingafulltrúa Isavia. Leigubílstjóri sem ræddi við Vísi í síðustu viku sagði stöðuna á leigubílastæðinu við Keflavíkurflugvöll enn minna á villta vestrið þvert á loforð forsvarsmanna Isavia um að gæsla á stæðinu yrði bætt. Hann sagði gæsluna af skornum skammti auk þess sem einungis væri um að ræða unga menn sem leigubílstjórinn sagði ekki ráða við ástandið. Þjónustan gangi mun betur „Það er mat okkar á Keflavíkurflugvelli að þjónusta leigubíla gangi nú mun betur fyrir sig en til dæmis á fyrri hluta síðast árs. Bæði eru samskipti við leigubílstjóra nú almennt betri og þeim tilvikum sem við höfum þurft að gera athugasemdir við störf þeirra hefur fækkað,“ segir í skriflegu svari Isavia. Frá því í byrjun maí hafi félagið verið með einn starfsmann á vakt hverju sinni. Viðkomandi hafi það hlutverk að aðstoða gesti flugvallarins við að nýta leigubílaþjónustuna. „Og stuðla að því að þeir fái góða þjónustu. Viðkomandi er á vakt á leigubílasvæðinu á háannatíma en er til taks þess utan gerist þess þörf.“ Bílstjórum í banni fækkað Segir í svarinu að þó það sé ekki hlutverk Isavia að hafa eftirlit með starfsemi leigubílstjóra þá hafi félagið fylgt því eftir að allir eligubílstjórar sem starfi á flugvellinum geri það í samræmi við þá skilmála sem þeir gangist undir við félagið. Verði bílstjórar uppvísir um að brjóta gegn þeim geri Isavia athugasemdir og loki fyrir aðgang þeirra að svæðinu ef þeir bregiðist ekki við athugasemdum. Alvarleg brot sem tilgreind eru í skilmálum séu kærð til lögreglu. „Þeim tilvikum þar sem við höfum þurft að loka fyrir aðgang hefur, sem betur fer, fækkað. Á síðustu sex mánuðum höfum við aðeins þurft að loka á aðgang sex bílstjóra að meðaltali á mánuði en 12 mánuðina þar á undan voru þeir um 13 á mánuði að meðaltali,“ segir í svarinu. „Þegar upp koma alvarlegri mál á borð við líkamleg áttök eða grun um sviksamlega viðskiptahætti þá ættu slík mál að fara beint og milliliðalaust til lögreglu eða eftir atvikum Samgöngustofu, sem hefur eftirlit með bílstjórum og veitir þeim starfsleyfi.“
Leigubílar Keflavíkurflugvöllur Isavia Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira