Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Kjartan Kjartansson skrifar 13. janúar 2026 11:52 Andrés Önd til bjargar. Hann nýtur mikilla vinsælda í Finnlandi þar sem hann er þekktur sem Aku Ankka. Vísir/Getty Þúsundir grunnskólabarna í Helsinki fá áskrift að vikublaði um teiknimyndapersónuna Andrés Önd ókeypis á næstunni. Tilgangurinn er að kanna hvort aðgangur að lesefni hafi áhrif á áhuga barna á lestri sem fer dvínandi í Finnlandi eins og víðar annars staðar.
Verkefnið er hluti af rannsókn Háskólans í Jyväskylä á læsi og áhuga barna á lestri en hvoru tveggja hefur hnignað á undanförnum árum, að sögn finnska ríkisútvarpsins. Ekkert lesefni er nú að finna á mörgum finnskum heimilum og er rannsókninni ætlað að kanna hvort aðgengi að lesefni geti kveikt áhuga hjá börnum. Rúmlega 5.500 börn í þriðja bekk í Helsinki fá Andrés vikulega heim til sín í þrjá mánuði í vor og í sumar. Rannsóknir eru sagðar benda til þess að myndasögur höfði sérstaklega til drengja og að þær geti kveikt áhuga barna sem læsu annars ekki sér til yndis. „Læsi fer hnignandi sem kemur tæplega á óvart þegar tími sem er varið í lestur hefur helmingast á undanförnum tveimur áratugum,“ segir Minna Torppa, prófessor við Háskólann í Jyväskylä. Lestrargeta barnanna sem taka þátt verður metin bæði fyrir og eftir tilraunina og þá á að bjóða foreldrum þeirra upp á leiðsögn um hvernig þeir geti hvatt börnin til dáða heima fyrir.
Finnland Bókmenntir Skóla- og menntamál Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira