Segja að Real Madrid vilji fá Jürgen Klopp Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2026 10:02 Það þyrfti örugglega félaga eins og Real Madrid til að fa Jürgen Klopp aftur út í þjálfun. Getty/ Bernd von Jutrczenka Jürgen Klopp, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, er enn og aftur orðaður við spænska stórveldið Real Madrid. Erlendir miðlar eru þegar byrjaðir að kafa og njósna um þjálfaraleitina á Bernabeu.
Að sögn franska miðilsins Foot Mercato vill Florentino Perez forseti félagsins að hinn 58 ára gamli Þjóðverji taki við sem framtíðarþjálfari liðsins. Xabi Alonso hætti sem aðalþjálfari Real Madrid en menn eru ekki sammála um hvort hann hafi gengið út eða hreinlega verið rekinn. Real Madrid var í það minnsta tilbúið með tímabundinn eftirmann hans um leið. Þangað til nýr þjálfari verður ráðinn stýrir Alvaro Arbeloa liðinu, en hann var færður upp úr varaliðinu Castilla. View this post on Instagram A post shared by Foot Mercato (@footmercato) Samkvæmt nokkrum heimildum er Jürgen Klopp talinn líklegur til að taka við sem aðalþjálfari frá og með næsta tímabili. Frá því að hann yfirgaf Liverpool árið 2024 hefur Jürgen Klopp starfað sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull-samsteypunni. Fréttir hafa borist af því að honum líki vel í starfinu en einnig að hann sakni þjálfarastarfsins. Foot Mercato greinir frá því að Real Madrid íhugi einnig hinn 45 ára gamla Ítala Enzo Maresca, sem nýlega yfirgaf Chelsea. Það má búast við mörgum fréttum og miklu slúðri um næsta þjálfara Real Madrid þar til að hann verður formlega kynntur af hinum allsráðandi Florentino Perez.
Spænski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Sjá meira