Setjum endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna í forgang Lísa Margrét Gunnarsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir skrifa 14. janúar 2026 07:01 Ímyndum okkur stúdent sem er í háskólanámi, vinnur hlutastarf samhliða námi, á barn eða tvö og reynir að ná endum saman. Námslánið dugar ekki til framfærslu því stúdentinn býr í leiguhúsnæði og því nauðsynlegt að afla aukinna tekna. Afleiðingin er aukið álag og minni tími til að sinna náminu. Markmiðið um að ljúka náminu á tilsettum tíma fjarlægist. Vonin um námsstyrk verður að engu og 9% vextirnir á námslánunum hlaðast upp. Stúdentinn klárar loks námið og heldur verulega skuldsettur út á vinnumarkað. Tilhlökkunin við hefja starfsferil í draumastarfinu litast af fjárhagsáhyggjum því árlega fara meira en heil mánaðarlaun í að greiða niður námslánin. Mörg þekkjum við vankanta gamla LÍN-kerfisins, en nýja MSNM-kerfið er enn verra. Þetta er ekki jaðardæmi, heldur raunveruleiki íslenskra háskólanema. Opinbera námslánakerfinu er ætlað að jafna tækifæri til náms og vera fjárfesting í framtíðarþekkingu þjóðarinnar. Það er hins vegar ekki raunin því ákvæði í lögum um Menntasjóð námsmanna vinna gegn þessum markmiðum. Þó gagnlegar breytingar hafi verið gerðar á lögunum á síðasta haustþingi er brýnt að stíga skrefið til fulls og ljúka vinnunni við heildarendurskoðun þeirra. Kerfi sem á að vera fjárfesting, en er orðið byrði Í lögum um Menntasjóð námsmanna frá 2020 er sjóðurinn skilgreindur sem félagslegur jöfnunarsjóður. Hugmyndin er einföld og markmiðið göfugt; allir sem hafa getu til þurfa að eiga þess kost að stunda háskólanám óháð efnahag. En í reynd er kerfið orðið þannig að of margir stúdentar upplifa það ekki sem stuðning, heldur sem hindrun. Þegar lán duga ekki til framfærslu neyðast stúdentar til að vinna meira. Þegar þeir vinna meira hafa þeir minni tíma og orku til að stunda námið. Námstíminn lengist og niðurfelling í lok náms (sem á að vera hvati til að klára námið fyrr) gengur ekki eftir. Námslánafyrirkomulagið verður því ekki hvati til að klára nám á réttum tíma, heldur vítahringur. Þess vegna hafa LÍS og BHM ráðist í rannsókn á afleiðingum námslánakerfisins frá 2020 og munu kunngjöra niðurstöður á vormánuðum. Ljóst er að sú vinna mun nýtast við endurbætur á kerfinu. Samanburður við Evrópu og mikilvægi sveigjanleika Núverandi fyrirkomulag gerir ráð fyrir ákveðinni hugmynd um „hefðbundinn“ stúdent: Ungur, barnlaus, heilsuhraustur, í fullu námi, með sveigjanlegan tíma og litla aðra ábyrgð en að stunda námið. En raunveruleiki íslenskra stúdenta er allt annar. Skoðum samanburð við stúdenta í Evrópu; þriðjungur íslenskra stúdenta eru foreldrar í námi, sem er hæsta hlutfall í Evrópu, þeir vinna mest allra, taka lengri námshlé og meðalaldur þeirra er sá hæsti í Evrópu. Félagslegur jöfnunarsjóður þarf að taka mið af þessum staðreyndum og koma til móts við þær. Besta leiðin til þess er aukinn sveigjanleiki í kerfinu. Nú þurfa stúdentar að vera í að minnsta kosti 75% námi til að uppfylla skilyrði fyrir námslánum. Það þarf lítið út af að bregða (veikindi, álag vegna vinnu, veikindi barns) til að fólk missi réttinn til náms. Því bitna ósveigjanlegar reglur kerfisins misjafnlega á fólki. Sumir hópar þurfa meiri sveigjanleika en aðrir, t.d. foreldrar í námi, fólk með fötlun og stúdentar með aðrar sértækar þarfir. Stuðningur við stúdenta í þeirri stöðu gæti falist í undanþágum frá stífum kröfum um námsframvindu, auknu aðgengi fatlaðs fólks að námslánum og úrræðum sem taka mið af raunverulegum aðstæðum. Hvað þarf að breytast? Ef námslánakerfið á að vera raunveruleg fjárfesting í framtíðarþekkingu þjóðarinnar, þarf það að uppfylla hlutverk sitt sem jöfnunartæki. Til að svo megi verða hafa BHM og LÍS lagt áherslu á tilteknar breytingar á lagaumhverfinu, sem mikilvægt er að verði skoðaðar á vettvangi stjórnvalda. Draga úr skuldabyrði Lægra vaxtastig en nú er, verðtryggð námslán bera allt að 4% vexti, óverðtryggð allt að 9%. Afnám 0,8% vaxtaálags fyrir lántakendur vegna vanskilakostnaðar. Auka raunverulegan stuðning Hærra hlutfall námsstyrkja. Betri stuðning við foreldra í námi. Auka sveigjanleika og sanngirni Lán fyrir skráðum einingum með skilyrðum. Rýmri reglur um námsframvindu og lánshæfi fólks í a.m.k. 50% námi. Framfærsla sem fylgir verðlagsbreytingum og húsnæðiskostnaði. Fjárfestum í framtíðinni Til þess að hvetja fólk til að sækja sér menntun og komast fyrr út í atvinnulífið með eftirsóknarverða fagþekkingu þarf að vera til staðar stuðningur sem tekur mið af raunverulegum aðstæðum stúdenta. LÍS og BHM eru tilbúin til samstarfs við stjórnvöld um lagfæringar á námslánakerfinu og hafa þegar lagt fram tillögur með það að markmiði að fullbúið frumvarp verði lagt fyrir Alþingi í upphafi haustþings 2026. Við höfum ríka ástæðu til að ætla að þetta sé í samræmi við vilja ráðherra háskólamála. Framtíðarlífsgæði þjóðarinnar eru undir. Höfundar eru Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti LÍS (Landssamtaka íslenskra stúdenta) og Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Hagsmunir stúdenta Námslán Mest lesið Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun