Opið bréf til frambjóðenda í Reykjavík: Hættum frösunum – leysum leikskólavandann með raunverulegum aðgerðum Nichole Leigh Mosty skrifar 13. janúar 2026 10:02 Kæru frambjóðendur hjá öllum flokkum sem vilja ræða leikskólamál, sem leikskólastjóri til margra ára og íbúi í Reykjavík bið ég ykkur að sleppa fallegum frösum og ósamræmdum loforðum þegar þið ræðið leikskólamál. Reykjavík hefur sett sér markmið um að bæta við tæplega 2.000 leikskólapláss á næstu árum, en á síðasta skólaári þurftu 55 af 67 leikskólum að skerða þjónustu eða loka tímabundið vegna mönnunarvanda; um 3.600 börn urðu fyrir áhrifum á 190 skóladögum. Svo er krafa ekki bara um að taka inn fleiri heldur yngri börn. Það krefst fleiri handa vegna aukinna stöðugilda og líka aukinnar sérþekkingar faglærðra leikskólakennara um þroska þarfir ungra barna. Þetta er dagleg raun foreldra, barna og starfsfólks sem þarf á kerfisbundnum úrbótum að halda, ekki meira stökum plástrum eða loforðum. Samkvæmt tölfræði á heimasíðu Reykjavíkurborgar þann 1. október 2024 var fjöldi stöðugilda í borgarreknum leikskólum 1.753, þar af voru einungis 369 menntaðir leikskólakennarar. Mikilvægt er að þið skiljið það að lágmarksþekking til að starfa í leikskóla er hvergi skilgreind og símenntun erfitt að tryggja. Þetta þýðir að minni hluti starfsfólks er faglærður og er ábyrgt fyrir að tryggja gæði í starfi á gólfinu. Samhliða því þarf leikskólakennarar að þjálfa og kenna meirihluta starfsfólks, sem hefur ekki faglega þekkingu, um leikskólaaðferðir um þroska og menntun barna. Það er gríðarlega mikið álag en sem betur fer eru leikskólakennarar vel menntaðir! Veikindi og starfsmannavelta ásamt innleiðingu styttingar vinnuvikunnar án nægilegrar mönnunar bætir þetta álag enn meira. Þið sem viljið tala fyrir því að bætt skóla- og leikskólakerfi þurfi einnig af heilandi að tækla húsnæðisvanda sem hefur verið sérstaklega slæmur í Reykjavík í allt of langan tíma. Þetta eru heimatilbúin vandamál sem krefjast markvissra langtímafjárfestinga í gæðum, með gagnsæi og með ábyrgð í forgrunni. Fjölmargir stjórnendur í Reykjavík hafa deilt áhyggjum vegna faglegs starfs, velferðar barna og starfsfólks. Einnig heyri ég allt of oft um skort á trú á að pólitískir fulltrúar séu að taka áhyggjur þeirra af alvarleika þar sem vandamálin eru grafalvarleg. Upplifunin sé oftast að sjónarmið foreldra um að fá leikskólapláss séu í forgangi. Ef gæði innan veggja leikskóla eru ekki tryggð þá fellur vandi leikskólans yfir á börn og foreldra. Vandinn endur svo aftur á ykkar herðir, þið sem viljið stigið þann skref núna að takast á við ábyrgð um að styðja við umbætur leikskólakerfis Reykjavíkurborgar. Engar töfralausnir eru til staðar en tillögur meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkurborgar um umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla hafa veitt mörgum von um að loksins verði gripið inn til að koma alvöru lausnum í framkvæmd. Sum ykkar vilja tala fyrir jafnréttishlutverki leikskóla sem nær þó lengra en til barna og foreldra. Það er gott þar sem kjörnir fulltrúar eiga að sjá að ávinningur felist í því að tryggja gæði í leikskólum og þar með samfélagslegri fjárfestingu sem skilar margföldu til baka, t.d. að börn nái hærra menntastigi, aukinni atvinnuþátttöku, minni tekjumun og betri lífskjörum. Án leikskóla er stór hópur fólks, sérstaklega konur og jaðarsettir hópar, haldið utan vinnumarkaðar. Aðgengi að leikskólum er því ekki lúxus, heldur forsenda þess að allir geti tekið þátt í atvinnulífi og samfélagi á jafnréttisgrundvelli. Ég vil hvetja ykkur sem sækist eftir kjörum að hugsa algjörlega utan kassans. Sýnið þið hugrekki og kallið atvinnulífið til samtals, samstarfs og samábyrgðar. Samfélagssáttmáli um leikskólamál hljómar vel. Ef atvinnulífið vill fjármagna uppbyggingu leikskóla er það jákvætt en mikilvægt er að gæta jafnræðis, ekki koma með sér úrræði eingöngu fyrir starfsfólk þeirra. Gott væri að taka eitt smá skref og efla til samstarf við atvinnulífið fyrst og fremst sem leið til að efla gæði og létta álag á leikskólum og foreldrum með því að: 1) Fjárfesta í menntun og fagmennsku - Fyrirtæki í gegnum samfélagssjóði sem mörg hver reka geta styrkt símenntun leikskólakennara og starfsfólks, fjármagnað rannsóknir og þróunarverkefni í leikskólafræðum og tekið þátt í átakssjóðum sem hækka gæði kennslu og starfs. Slíkt samstarf er líka fjárfesting í framtíðarhæfni vinnumarkaðarins og styður langtímamarkmið um aukið hlutfall faglærðra leikskólakennara. „Landsvirkjun í samstarfi við Reykjavíkurborg styrkir 10 starfsmenn leikskóla til náms“ verður ágæt fyrirsögn. 2) Bættar vinnuaðstæður og sveigjanleiki - Samhliða Reykjavíkurborg (sem er nota bené einn stærsti „atvinnurekenda“ og getur sýnt gott fordæmi) getur atvinnulífið litið inn á við og spurt: „Hvernig mætum við betur foreldrum með börn á leikskólaaldri?“ Lykilorðin eru sveigjanlegt vinnufyrirkomulag, raunhæf fjarvinnuúrræði, skilningur þegar börn veikjast eða þjónusta skerðist, og markviss endurkomustefna eftir fæðingarorlof. Í COVID sýndum við að sveigjanleiki og svigrúm virka. Ef haldið verður áfram á þeirri braut getur slíkt fyrirkomulag dregið úr starfsmannaveltu víða, bætt líðan og aukið framleiðni án þess að velta kerfisvandanum yfir á foreldra og börn. Það verður freistandi í komandi mánuðum að leita skyndilausna og snjallra svara við kjósendum en mikilvægast er að hlusta á þá sem hafa alvöruhagsmuna að gæta, þ.m.t. starfsfólk, foreldra og börn. Við munum halda ykkur ábyrgum fyrir að leysa rót vandans. Ekki gleymi að leikskólinn er fyrsta skólastigið, ekki geymsla eða „visuntarúrræði“. Ef þið ætlið að leiða Reykjavík til bjartrar framtíðar fyrir börn er mikilvægt að þið talið skýrt og af heilandi. Þið þurfið að vera reiðbúin til að taka erfiðar ákvarðanir um að fjárfesta í fagmennsku, stöðugleika og heilnæmu starfsumhverfi. Þið eigið kost á að velja milli leiðar „frasa og frestunar“ eða leiðar „hugrekkis og ábyrgðar“. Börnin, foreldrar og starfsfólkið eiga seinna kosti skilið. Höfundur er leikskólastjóri og fyrrverandi alþingiskona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nichole Leigh Mosty Mest lesið Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Excel sér ekki barnið sem bíður Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Um rekstur Reykjavíkurborgar 2025 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Það er og verður gott að búa í Kópavogi Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Sterk velferð fyrir fólk í Kópavogi Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Aldursvæn samfélög – verkefni nýrra sveitarstjórna Halldór S. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er ekkert „við og þið“, aðeins eitt samfélag Viðar Marinósson skrifar Skoðun Athugasemdir við villandi samanburði Viðskiptaráðs um sorphirðu Guðmundur B. Friðriksson skrifar Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson skrifar Skoðun Keldnaland steinsteypt excelskjal Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur verið þorpið sem við þurfum öll á að halda Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Hleypum fötluðum börnum inn á völlinn! Stefán Pálsson skrifar Sjá meira
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar
Skoðun Athugasemdir við villandi samanburði Viðskiptaráðs um sorphirðu Guðmundur B. Friðriksson skrifar