Íslenska velsældarhagkerfið: Stefnumörkun, áskoranir og tækifæri Soffía S. Sigurgeirsdóttir, Soffia S. Sigurgeirsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir og Elva Rakel Jónsdóttir skrifa 12. janúar 2026 08:02 Á undanförnum árum hefur hugtakið velsældarhagkerfi rutt sér til rúms í alþjóðlegri stefnumótun sem ný nálgun á efnahagslegan og samfélagslegan árangur. Í stað þess að leggja einhliða áherslu á hagvöxt sem mælikvarða á velgengni þjóðar, horfa ríki frekar til heildstæðari sýnar þar sem mannleg velsæld, heilsa, félagslegt réttlæti og sjálfbær nýting náttúruauðlinda eru í fyrirrúmi. Ísland hefur á síðustu árum tekið afgerandi skref í átt að slíkum efnahags- og samfélagsramma og staðsett sig sem eitt af leiðandi ríkjum í mótun og innleiðingu velsældarhagkerfis á heimsvísu. Velsældarhagkerfi byggir á þeirri forsendu að árangur samfélags sé best mældur í gæðum lífs, ekki eingöngu efnahagslegum árangri. Ein helsta áskorun umbreytingar yfir í velsældarhagkerfi er að brúa bilið milli stefnumótunar og raunverulegra breytinga í lífi fólks. Það krefst skýrrar stefnumörkunar stjórnvalda, samhæfingar milli ráðuneyta, sveitarfélaga, stofnana og atvinnulífs. Hér á landi hefur átt sér stað þróun sem á sér bæði pólitískar og fræðilegar rætur, þar sem þekking á sviði lýðheilsu, hagfræði, velferðarstefnu og umhverfisfræða hefur orðið sífellt samræmdari. Ísland hefur innleitt mælaborð velsældar sem styður við stefnumótun stjórnvalda og gefur dýpri innsýn í raunverulega lífsgæði landsmanna. Innleiðing velsældarviðmiða í opinbera stjórnsýslu skiptir sköpum og hefur þannig bein áhrif á hvernig ríkið skilgreinir árangur. Langtímamarkmiðið er að þessi nálgun verði hluti af daglegum vinnubrögðum og umgjörð í starfsemi hins opinbera. Þar skiptir gagnasöfnun, reglubundin eftirfylgni og skýr framsetning lykilmáli. Án traustra og aðgengilegra gagna verður erfitt að meta þróun eða áhrif nýrra aðgerða. Ísland stendur þó vel að vígi til að takast á við þessar áskoranir. Smæð og gagnsæi kerfa gera tilraunastarfsemi og hraða innleiðingu mögulega, og sterk samfélagsvitund og almennt traust til stjórnsýslu eru mikilvægir hvatar. Þá er áherslan á forvarnir og heilsueflingu, sem mótar sífellt stærri hluta íslenskrar heilbrigðisstefnu, í takt við markmið velsældarhagkerfisins. Rannsóknir sýna að samfélög sem fjárfesta í félagsauði, menntun, jafnræði og náttúruvernd uppskera meiri langtímalífsgæði, betri lýðheilsu og sjálfbærari efnahagsþróun. Ný atvinnustefna stjórnvalda styður jafnframt við þessa þróun með því að leggja áherslu á fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf sem skapar lífsgæði til lengri tíma fremur en skammtíma efnahagslega framleiðni. Í stefnunni er lögð rík áhersla á nýsköpun, græna umbreytingu, stafræna þróun, umhverfisvæna orkunýtingu og aukna verðmætasköpun í öllum helstu atvinnugreinum. Slíkar áherslur samræmast kjarnagildum velsældarhagkerfisins þar sem markmiðið er að byggja upp hagkerfi sem þjónar samfélaginu heildstætt, tryggir að gæði atvinnulífsins skili sér í betri heilsu, menntun og félagslegum stöðugleika og stuðlar að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Með því að tengja horfur atvinnulífsins við mælanleg viðmið um samfélagslega velsæld verður atvinnustefnan jafnframt tæki til að efla samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi og styrkja stöðu landsins sem framsækins og ábyrgðs efnahagslífs. Atvinnulífið hefur umtalsverðu hlutverki að gegna í umbreytingu yfir í velsældarhagkerfi. Fyrirtæki eru í síauknum mæli farin að átta sig á mikilvægi félagslegrar sjálfbærni og þeirrar umbreytingar sem er þörf til að mæta breyttri heimsmynd. Andspænis þáttum sem ógna rekstrarumhverfi, svo sem áhrif loftslagsbreytinga eða geopólitískur óstöðugleiki, skiptir enn meira máli að tryggja innri stöðugleika í rekstri. Slíkur stöðugleiki fæst ekki síst með því að efla velsældaráherslur. Þegar fyrirtæki huga að heildrænni velsæld í sinni stefnumótun hvort sem er í vinnuumhverfi, verðmætasköpun, nýsköpun eða þjónustu við samfélagið, verður sú nálgun hluti af þjóðhagslegri heildarmynd. Þannig getur einkageirinn bæði stutt við og hagnast á yfirfærslu yfir í velsældarhagkerfi. Fram undan eru fjölmörg tækifæri til að dýpka og efla íslenska nálgun á velsæld. Þar má nefna frekari samþættingu velsældarviðmiða í sveitarstjórnarstigið, aukna þátttöku almennings í stefnumótun og samstarf við alþjóðlegar stofnanir sem vinna að sömu markmiðum. Með samstilltu átaki stjórnvalda, atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka og almennings getur Ísland orðið leiðandi í að móta nýja hugsun um hvað telst raunverulegur árangur í samfélagi. Íslenska velsældarhagkerfið er þannig bæði stefna og ferli, ferðalag sem felur í sér raunhæfa og skynsama, endurskilgreiningu á því hvað skiptir máli í lífi fólks. Með því að byggja á gögnum, samvinnu og skýrum gildum getur Ísland haldið áfram að þróa efnahagskerfi sem þjónar heildarhagsmunum samfélagsins og tryggir velsæld núlifandi og komandi kynslóða. Soffia S. Sigurgeirsdóttir framkvæmdastjóri Langbrókar Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri lýðheilsu embættis landlæknis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Soffía S. Sigurgeirsdóttir Elva Rakel Jónsdóttir Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar