Áfram kalt á landinu Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2026 07:09 Frost í dag verður almennt á bilinu núll til tólf stig, minnst við suðaustur- og austurströndina. Vísir/Vilhelm Það verður áfram kalt á landinu í dag og vindáttin austlæg – gola eða kaldi – en sums staðar strekkingur við suður- og vesturströndina. Yfirleitt má reikna að verða þurrt veður vestantil, en á austanverðu landinu má búast við éljum.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að í nótt hafi mælst mest frost 18,9 stig á Sauðárkróksflugvelli og 18,6 stig við Mývatn. Frost í dag verður almennt á bilinu núll til tólf stig, minnst við suðaustur- og austurströndina. „Undir kvöld eru líkur á að snjókomubakki með sterkari vindi komi inn á suðaustanvert landið og þá má búast við versnandi akstursskilyrðum á þeim slóðum.Á morgun er síðan norðaustan kaldi eða strekkingur í kortunum og él nokkuð víða, þó ætti að vera þurrt og bjart á suðvestanverðu landinu. Suðaustantil verður áfram sterkari vindur (allhvass eða hvass) og áðurnefndur snjókomubakki verður viðloðandi fram yfir hádegi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 13-20 suðaustanlands. Bjart með köflum suðvestan- og vestanlands, annars skýjað og víða él. Frost 0 til 8 stig. Á föstudag: Norðaustan 3-10, en 10-15 með suðausturströndinni fyrir hádegi. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi, en él norðan- og austanlands, einkum við ströndina. Frost 2 til 12 stig. Á laugardag og sunnudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Þurrt og bjart suðvestan- og vestanlands, annars skýjað með köflum og líkur á éljum. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Hæg breytileg átt. Stöku él við ströndina, en bjart inn til landsins. Frost 3 til 14 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á þriðjudag: Suðlæg átt og léttskýjað, en skýjað við suður- og vesturströndina. Áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira