Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Sindri Sverrisson skrifar 6. janúar 2026 14:01 Júlíus Mar Júlíusson virðist vera á förum frá KR eftir eins árs dvöl. vísir / jón gautur Útlit er fyrir að KR muni selja miðvörðinn Júlíus Mar Júlíusson til norska knattspyrnufélagsins Kristiansund og að hann verði þar með annar íslenski leikmaðurinn sem fer til félagsins úr Bestu deildinni í vetur.
Frá þessu greinir Fótbolti.net í dag og hefur heimildir fyrir því að KR hafi fengið tilboð frá Kristiansund í Júlíus. Áhugi hefur verið á Júlíusi frá Norðurlöndum en hann er samningsbundinn KR út árið 2028. Samkvæmt upplýsingum Vísis hefur sá áhugi þó ekki endað með tilboði nema í tilfelli Kristiansund og standa viðræður yfir. Þessi 21 árs gamli miðvörður kom til KR síðasta vetur frá uppeldisfélagi sínu Fjölni og mun þá hafa kostað 7,5 milljónir. Talað hefur verið um að KR vilji tvöfalda þá upphæð fyrir Júlíus nú. Júlíus lék 16 leiki í Bestu deildinni í fyrra og á einnig að baki 3 leiki fyrir U21-landslið Íslands. Hann var á varamannabekknum í síðustu þremur leikjum KR á síðustu leiktíð, þegar liðið bjargaði sér naumlega frá falli niður í Lengjudeildina. Áður hafði Kristiansund tryggt sér krafta Hrannars Snæs Magnússonar sem félagið fékk frá Aftureldingu eftir að Mosfellingar féllu úr Bestu deildinni í haust. Kristiansund hafnaði í 13. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, með 34 stig úr 30 leikjum, og var þremur stigum frá því að þurfa að fara í fallumspil.
Besta deild karla KR Norski boltinn Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Sport Fleiri fréttir „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Uppgjör og viðtöl: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Dean Martin kveður ÍA og tekur við liði í Óman Markaveisla og varamenn gerðu sig gildandi í Breiðholti Vestri í toppbaráttu eftir afar sætan sigur Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Sjá meira