Roddarinn ánægður með brottrekstur Nancy: „Farinn á pöbbinn að fagna“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. janúar 2026 08:31 Sir Rod Stewart er einn þekktasti stuðningsmaður Celtic. getty/Ian MacNicol Sir Rod Stewart réði sér ekki fyrir kæti þegar fréttirnar af brottrekstri Wilfrieds Nancy frá Celtic bárust.
Eftir aðeins 33 daga í starfi og hafa einungis stýrt Celtic í átta leikjum var Nancy rekinn frá skoska félaginu í gær. „Hann er farinn! Hann er farinn!“ hrópaði Stewart í myndbandi þar sem hann brást við tíðindunum frá skosku höfuðborginni. „Wilfried Nancy hefur verið rekinn eða fór. Mér er alveg sama. Hann er ekki lengur hjá Celtic. Við mætum Dundee United um helgina. Ég mæti, ekki hafa áhyggjur af því.“ Roddarinn kvaðst vilja fá Martin O'Neill við stjórnvölinn hjá Celtic og gamli rámur var bænheyrður því hann stýrir Celtic nefnilega út tímabilið. O'Neill var stjóri Celtic á árunum 2000-05 og stýrði liðinu svo í átta leikjum eftir að Brendan Rodgers hætti hjá því í lok október í fyrra. Celtic vann sjö þeirra. „Við þurfum að fá þig til baka, Martin O'Neill. Komdu okkur í gegnum tímabilið og svo getum við kannski fengið Robbie Keane. Það yrði himnasending,“ sagði Stewart. „Núna er ég farinn á pöbbinn til að fagna,“ bætti söngvarinn ástsæli við. 'I'm going down the pub to celebrate!' Sir Rod Stewart reacts to the news that Wilfried Nancy has been sacked as Celtic boss ⤵️#BBCFootball pic.twitter.com/OhSE4Oe7XL— BBC Sport Scotland (@BBCSportScot) January 5, 2026 Celtic er í 2. sæti skosku úrvalsdeildarinnar með 38 stig, sex stigum á eftir Tómasi Bent Magnússyni og félögum í Hearts. Celtic hefur orðið skoskur meistari fjórum sinnum í röð og 55 sinnum alls.
Skoski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Fleiri fréttir Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Mark 17 ára trölls, rassinn úti og bikar á loft Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Þoka í Færeyjum veldur vandræðum „Ég er með stærri drauma“ Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Messi kom til baka við mikinn fögnuð áhorfenda Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Öll lið lenda í þessu Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Paris Saint-Germain vann Ofurbikarinn annað árið í röð Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Xavi tekur við hollenska landsliðinu Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum „Viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn“ Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Sjá meira