Salah gulltryggði Egypta áfram í átta liða úrslitin Aron Guðmundsson skrifar 5. janúar 2026 18:44 Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, er landsliðsfyrirliði Egyptalands Vísir/Getty Landslið Egyptalands er komið áfram í átta liða úrslit Afríkukeppninnar í fótbolta eftir 3-1 sigur í framlengdum leik gegn Benín í kvöld.
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, var á sínum stað í byrjunarliði Egyptalands í kvöld og bar fyrirliðabandið og það voru einmitt Egyptar sem komust yfir í leiknum á 69.mínútu með marki frá Marwan Ateya en skot hans fyrir utan vítateig Benín sveif upp í vinstra horn marksins og söng í netinu. 1-0. Þegar komið var fram á 83.mínútu náði Benín þó að jafna. Það gerði Jodel Dossou er hann kom boltanum í netið af stuttu færi. Staðan orðin 1-1 og það var hún einnig þegar flautað var til loka venjulegs leiktíma. Grípa þurfti til framlengingar til að skera úr um hvort liðið færi áfram í átta liða úrslitin. Þar reyndist Egyptaland hlutskarpara. Á 97. mínútu skoraði Yasser Ibrahim það sem reyndist sigurmark leiksins með skallamarki eftir hornspyrnu. Egyptar komnir yfir í stöðuna 2-1. Mohamed Salah gulltryggði Egyptaland svo áfram í átta liða úrslit Afríukeppninnar með þriðja marki liðsins á síðustu sekúndum leiksins. Þar batt hann enda á skyndisókn Egyptalands með marki fyrir utan teig. Staðan orðin 3-1 Egyptalandi í vil og þar við sat. Egyptaland heldur því áfram í átta liða úrslitin en Benín er úr leik. Það ræðst á morgun hverjum Egyptar mæta í átta liða úrslitunum en þó vitað að það verður sigurliðið úr viðureign Fílabeinsstrandarinnar og Burkina Faso.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Fótbolti Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Fótbolti Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Körfubolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Fleiri fréttir Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Sjáðu ótrúlega þrennu Valverde í fyrri hálfleik Thelma skoraði og Fanney hélt hreinu í bikarsigri Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Hætti við að sækja um hæli og fór frekar heim til Írans „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Scholes bað Carrick afsökunar „Þær eru öruggar hér og þeim ætti að líða vel“ „Sorgmæddur en stoltur“ Fleury fór á kostum gegn FH Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir? Bæjarar gengu frá Atalanta Flautumark kramdi drauma norðursins um sigur gegn Börsungum Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Sjá meira