Hetja Read Madrid í sumar fékk loksins tækifæri og nýtti það Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2026 17:21 Gonzalo Garcia fagnar hér öðru mark sínu fyrir Real Madrid í dag með miklum tilþrifum. Getty/Florencia Tan Jun Hinn 21 árs gamli Gonzalo Garcia hefur ekki fengið mörg tækifæri með Real Madrid á þessu tímabili en hann var hetja liðsins í spænsku deildinni í dag.
Real Madrid vann 5-1 heimasigur á Real Betis á Estadio Bernabéu og strákurinn skoraði þrennu í leiknum. Með sigrinum minnkaði Real forskot Barcelona á toppnum í fjögur stig. Garcia skoraði fjögur mörk í sex leikjum í heimsmeistarakeppni félagsliða í sumar en hafði aðeins byrjað einn leik og spilað samtals 170 mínútur í spænsku deildinni í vetur. Hann átti eftir að skora í deildinni en bætti heldur betur úr því í dag. Franski framherjinn og langmarkahæsti leikmaður liðsins, Kylian Mbappé, gat ekki spilað í kvöld vegna meiðsla og Xabi Alonso kallaði Garcia inn í byrjunarliðið. Hann sá ekki eftir því. Garcia skoraði fyrst með skalla á 20. mínútu eftir fyrirgjöf frá Rodrygo. Annað markið hans var síðan frábær afgreiðsla á 50. mínútu eftir að hann tók niður sendingu frá Federico Valverde og afgreiddi boltann glæsilega í markið fyrir utan teig. Raul Asencio skoraði síðan þriðja markið með skalla á 56. mínútu eftir aðra stoðsendingu frá Rodrygo. Juan Hernández minnkaði muninn fyrir Betis á 66. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki. Gonzalo Garcia var ekki hættur og innsiglaði þrennu sína eftir stoðsendingu frá Arda Güler á 83. mínútu. Það urðu lokatölurnar. Francisco Garcia skoraði síðan fimmta og síðasta mark Real Madrid í uppbótartímanum.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira