Þú þarft líklega ekki að taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu Ásdís Bergþórsdóttir skrifar 1. janúar 2026 17:02 Á nýju ári birtist á Vísi greinin: „Er áramótaheitið árið 2026 betri skjávenjur?“ þar sem talað er um að gera svefnherbergið skjálaust. Í þeim stutta kafla er sumt verulega undarlegt út frá núverandi þekkingu. Þar kemur fram ráðleggingin að taka öll hleðslutæki út úr svefnherberginu af því að snjallsímar hafi slæm áhrif á svefninn. En hleðslutæki er ekki skjátæki. Það er enginn rökstuðningur eða útskýring á því af hverju hleðslutæki megi ekki vera í svefnherberginu. Svo er fullyrt að snjallsímar hafi slæm áhrif á svefn. Vissulega sofnar fólk ekki á meðan það er virkt í snjallsímanum. Ekki frekar en fólk sofni við annað virkt athæfi - prófaðu hreyfa höndina stanslaust uppi í rúmi og sjáðu hvernig þér gengur að sofna. Þannig er það ekki síminn sem veldur vandanum heldur það að við erum ekki að reyna að róa okkur og fara að sofa. Ef þér finnst þú þurfa að skrolla áfram og áfram áður en þú ferð að sofa þá getur verið ágætt að hafa símann ekki nálægt sér. Vandinn er samt ekki síminn, heldur þú og þín hegðun. Ef þú ert að nota símann á nóttunni þá er eðlilegt að setja hann fram. Það getur verið að þú farir að vakna til að nota símann. Ef þú ert ekkert að nota hann á nóttunni og sefur þokkalega þá skiptir engu máli hvort þú sefur í gegnum nóttina með hann við hliðina á þér. En hvað með bláa ljósið? Á það ekki að hafa svo slæm áhrif á svefn? Það er vissulega kenning sem var sett fram en staðan núna á vísindalegri þekkingu er sú að National Sleep Foundation treystir sér ekki til að fullyrða að blátt ljós hafi slæm áhrif á svefn, hvorki hjá börnum, unglingum né fullorðnum. National Sleep Foundation er félagsskapurinn á bak við ráðleggingar um ráðlagðan svefntíma sem allir heilbrigðisaðilar vísa í. Það er einfaldlega ekki vitað hvort að blátt ljós seinki svefni. Það er fullt af íslenskum sérfræðingum sem fullyrða samt að blátt ljós seinki svefni en það þýðir bara að þeir eru ekki að fylgjast með rannsóknum. National Sleep Foundation treystir heldur ekki til að fullyrða að skjánotkun hafi áhrif á svefn fullorðinna. Fullyrðingin í greininni: „Það er löngu vitað að snjallsímar hafa slæm áhrif á svefninn okkar – bæði á gæði hans og lengd“ stenst einfaldlega ekki. Þetta er ekki vitað, því síður löngu vitað. Af einhverri undarlegri ástæðu er sagt í greininni: „Ef þið viljið ganga skrefinu lengra má líka íhuga að taka tölvur og sjónvörp út úr svefnherbergjum“. Ég skil ekki alveg hvernig er hægt að gera herbergi skjálaus en hafa tölvur og sjónvörp inni í þeim en það er margt í lífinu sem ég skil ekki. Ef þú ætlar að gera svefnherbergi skjálaust þarf að taka öll skjátæki úr þeim, líka hitamæla með skjá, blóðþrýstingsmæla með skjá og svo framvegis. Af hverju er það skaðlegt að hafa tölvur og sjónvörp í svefnherbergjum? Því er auðsvarað. Það er almenn ráðlegging sérfræðinga að svefnherbergi eigi einvörðungu að vera fyrir svefn og kynlíf. Það er til þess að heillinn pari svefnherbergið aðeins saman við svefn. Það er því ekki ráðlagt að hafa nein tæki sem þarf að vinna við eða nota eins og tölvur og sjónvörp eða prjónavélar. Þetta er ekki nein aukaráðlegging. Þetta er ein af aðalráðleggingum um svefn. Ekki gera neitt annað í svefnherberginu en að sofa og stunda kynlíf. Út með allt annað en tölvunotkun, sjónvarpsáhorf, prjónaskap, taflmennsku o.s.frv. Þú þarft ekki taka símann og hleðslutækið úr svefnherberginu ef þú ert bara að nota hann sem vekjaraklukku. Ef þú sefur þokkalega þá eru engin vandamál og engu þarf að breyta. Það þarf ekkert áramótaheit. Það er hins vegar skynsamlegt að nota bara svefnherbergið undir svefn og kynlíf. Þannig að ef það er möguleiki að hafa sjónvarpið og tölvuna annars staðar þá er það betra. Um hver áramót kemur fram fullt af fólki sem er að selja okkur hugmyndir um betra líf, meiri vellíðan og meira jafnvægi. Það er eins og lífið eigi að vera kapphlaup eftir jafnvægi og vellíðan en það er ekki hægt að vera í vellíðan og vera í kapphlaupi eftir vellíðan á sama tíma. Sefurðu þokkalega? Þá þarftu ekki breyta neinu í svefnherberginu. Við sofum öll illa stundum en á meðan það er enginn vandi þá þarf ekkert að gera. Ekki kokgleypa áróðurinn um að þú þurfir að lifa öðru lífi en þú lifir. Ef maður er sáttur við líf sitt þá þarf engu að breyta. Heimildir Hartstein, L. E., Mathew, G. M., Reichenberger, D. A., Rodriguez, I., Allen, N., Chang, A. M., ... & Hale, L. (2024). The impact of screen use on sleep health across the lifespan: A National Sleep Foundation consensus statement. Sleep Health, 10(4), 373-384. Höfundur er sálfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar