Mesta áhorfið á jólaleiki NBA í fimmtán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 16:32 Benny the Bull, lukkudýr Chicago Bulls, í jólabúning og færandi stuðningsmönnum gjafir. NBA-deildin fékk góða jólagjöf frá áhorfendum þessi jólin. Getty/Justin Casterline Þetta voru góð jól fyrir NBA-deildina í körfubolta þegar kemur að áhorfi á jólaleiki deildarinnar.
Deildin gaf út áhorfendatölurnar sínar í gær og þær líta mjög vel út enda þvert gegn þeirri þróun sem hefur verið undanfarin ár. Meira en 47 milljónir manna í Bandaríkjunum horfðu á að minnsta kosti hluta af leikjadagskránni á jóladag sem samanstóð af fimm leikjum á ABC og ESPN-stöðvunum, sem er 45 prósenta aukning frá síðasta ári. NBA-deildin hefur fengið meiri samkeppni frá NFL-deildinni síðustu ár og situr ekki lengur ein að kjötkötlunum. Að meðaltali voru 5,5 milljónir áhorfenda á leikjunum í NBA, sem er fjögurra prósenta aukning frá því fyrir ári síðan. Leikur Cleveland og New York var mest sótti jóladagsleikurinn frá upphafi meðal hádegisleikjanna með að meðaltali 6,4 milljónir áhorfenda. Leikur San Antonio og Oklahoma City var sá mest sótti í tímarammanum hálfþrjú á jóladag síðan 2017 og leikur Dallas og Golden State var sá mest sótti í klukkan fimm tímarammanum á hátíðardeginum síðan árið 2019. NBA-deildin sagði líka frá því að hún hefði verið mest skoðaða vörumerkið á samfélagsmiðlum á jóladag, en efni hennar skilaði 1,6 milljörðum áhorfa, samkvæmt Videocites. Það er 23 prósenta aukning frá jólunum 2024.
NBA Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Besti árangur Íslendings á EM í 24 ár Sport Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Fótbolti Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira