Nígeríumenn snöggir að nýta sér liðsmuninn og fengu fullt hús Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2025 18:08 Ebere Paul Onuachu kom Nígeríu á bragðið gegn Úganda. getty/Ulrik Pedersen Keppni í C-riðli Afríkumótsins í fótbolta lauk í dag. Nígería vann öruggan sigur á Úganda, 1-3, á meðan Tansanía og Túnis skildu jöfn, 1-1.
Nígeríumenn unnu alla þrjá leiki sína í C-riðli. Túnisar enduðu í 2. sæti og komust einnig áfram í sextán liða úrslit sem og Tansanir. Úgandamenn eru aftur á móti úr leik. Ebere Paul Onuachu kom Nígeríu í 0-1 gegn Úganda á 28. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Á 56. mínútu fékk Úgandamaðurinn Salim Jamal Magoola rautt spjald og Nígeríumenn voru ekki lengi að nýta sér liðsmuninn. Raphael Onyedika skoraði á 62. mínútu og svo aftur fimm mínútum síðar. Rogers Mato minnkaði muninn í 1-3 þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en nær komst Úganda ekki. Túnis tapaði ekki leik og fékk ekki á sig mark í undankeppni HM en hefur ekki sýnt sínar bestu hliðar á Afríkumótinu. Túnisar unnu Úgandamenn í fyrsta leik sínum, 1-3, en töpuðu svo 3-2 fyrir Nígeríumönnum. Í dag komst Túnis yfir gegn Tansaníu þegar Ismael Gharbi skoraði úr vítaspyrnu á markamínútunni, þeirri 43. Í upphafi seinni hálfleiks jafnaði Feisul Salum en markið tryggði Tansani áfram í sextán liða úrslit. Þeir enduðu í 3. sæti riðilsins með tvö stig en fjögur af sex liðunum í 3. sæti riðlanna á Afríkumótinu komust áfram í sextán liða úrslit. Þar mætir Tansanía heimaliði Marokkó á meðan Túnis mætir Malí. Nígería mætir liðinu sem endar í 3. sæti F-riðils; Fílabeinsströndinni, Kamerún eða Mósambík.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Sjá meira