Tekur yfir borgina á nýársdag Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. desember 2025 13:23 Þórdís Erla Zoega er höfundur Sólarhings sem mun prýða auglýsingaskjái borgarinnar. Auglýsingahlé verður á yfir 550 skjáum Billboard um alla Reykjavíkurborg frá 1. til 3. janúar 2026 þegar verkið Sólarhringur eftir Þórdísi Erlu Zoëga tekur yfir þá. Í verkinu breytast skjáir borgarrýmisins með birtu dagsins, taka mið af litbrigðum sólarljóssins og verða þannig að stafrænni sólarklukku.
Þórdís var valin úr hópi umsækjenda fyrr á árinu. Dómnefnd skipuð fulltrúa frá Y gallery, Listasafni Reykjavíkur, Billboard og SÍM valdi verkið sem að sýningartíma loknum verður gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Þórdísar dag hvern í byrjun árs 2026. Auglýsingahlé er samstarfsverkefni Billboard, Y gallery og Listasafns Reykjavíkur. Verkefnið er vettvangur fyrir myndlist í almenningsrými og er því ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina. Þeir myndlistarmenn sem áður hafa tekið þátt í verkefninu eru Hrafnkell Sigurðsson, Sigurður Ámundason, Haraldur Jónsson og Roni Horn. Bróðurparti dagsins eytt í skjái „Í nútímasamfélagi eyðum við bróðurparti dagsins í að horfa á skjái. Skjái sem fylgja okkur í vasanum, skjái sem hanga á veggjum eða standa á borðum, og nú einnig skjái í borgarumhverfinu sem sækja stöðugt á athygli okkar þegar við ferðumst um borgina. Skjáir trufla athyglisgáfu okkar og taka okkur úr augnablikinu. Ég hef oft staðið mig að því sjálf að horfa á fallega náttúru í gegnum símann minn frekar en að líta út um gluggann og upplifa sjónarspil himinsins. Skjáir ýkja liti, gera allt skærara og meira ,,djúsí” en raunveruleikinn sjálfur,“ segir Þórdís í hugleiðingum sínum um verkið. Með verkinu vill hún hvetja til nýrrar hugsunar um samband manns, tækni og náttúru. Skjárnir breytast með birtu dagsins, taka mið af litbrigðum sólarljóssins og áhrifum þess á himinhvolfið og verða þannig að sólarklukku sem sýnir takt lífsins, þar sem líftími frumunnar fylgir ljósaskiptum sólarhringsins í rauntíma. „Innblásturinn kemur bæði úr örheimi frumunnar og víðáttu alheimsins. Þó þessir heimar séu ólíkir lúta þeir báðir náttúrulegum hringrásum. Verkið sýnir tengingu milli hins smæsta og hins stærsta - frumunnar og alheimsins - sem slær saman í einum takti: sólarhringnum,“ segir hún. Þórdís Erla Zoëga er fædd 1988 og útskrifaðist frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2012. Zoëga hefur sýnt verk sín víða, þar á meðal í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Berlín, Basel og Tékklandi. Á Íslandi hefur hún sýnt verk sín meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Listahátíð í Reykjavík og átt í samstarfi við BIOEFFECT, Hilton hótel, Íslenska dansflokkinn og Bláa lónið. Á Íslandi verður verkið Upphaf, ný varanleg innsetning sett upp við inngang nýja Landspítalans og einnig verkið Flæði við tíu innganga Heklureits, nýrrar byggingarsamstæðu í miðbæ Reykjavíkur. Meðal annarra nýlegra verkefna sem hún hefur unnið að eru hönnun á klæðningu 40 metra hás vatnstanks í Helsinki fyrir finnska orkufyrirtækið FORTUM.
Myndlist Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Móðurmorð í blóðugu jólaboði Gagnrýni Clooney orðinn franskur Lífið Græna gímaldið ljótast Menning Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Tekur yfir borgina á nýársdag Menning Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Lífið Idris Elba sleginn til riddara fyrir baráttu gegn hnífaburði Lífið Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Fleiri fréttir Tekur yfir borgina á nýársdag Græna gímaldið ljótast Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Glænýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru „Við erum öll dauð hvort sem er“ Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Sjá meira