„Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. desember 2025 17:51 Óskar Hallgrímsson var til viðtals í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Vísir/Elín Margrét Íbúar Úkraínu glíma við nær daglegt rafmagnsleysi og svefnfriður er jafnan lítill þegar hvað mest lætur í árásum Rússa. Íslendingur í Kænugarði segir umfang loftárása Rússa hafa tífaldast frá því í fyrra með tilliti til fjölda vopna sem nýtt eru til árása á Úkraínu. Það sé til marks um mikla framleiðslugetu Rússa sem sé ekki aðeins áhyggjuefni fyrir Úkraínu heldur Evrópu alla.
Óskar Hallgrímsson og eiginkona hans vörðu fyrrinótt til skiptis inni í svefnherbergi og inni á baði til að vera í öruggara skjóli frá umfangsmikilli árás Rússa á Kænugarð. „Hún var tíu tímar, árásin, og kom í mörgum bylgjum. Og það var ekkert hægt að taka sér nein frí á milli af því að þetta var það hættulegt. Hver bylgja var það stór og það hættuleg að maður varð að fylgjast með henni. Maður gat ekki alveg lagt sig á koddann á milli,“ segir Óskar í samtali við fréttastofu. Hann hafi ekki sofið nema nokkrar klukkustundir samanlagt undanfarna þrjá sólarhringa vegna dynjandi árása Rússa. Líkt og aðrir íbúar Úkraínu hefur Óskar ekki heldur farið varhluta af árásum Rússlands á orkuinnviði. „Við göngum í gegnum hérna daglegt rafmagnsleysi, við köllum það rúllandi rafmagnsleysi. Það rúllar fjóra tíma á og fjóra tíma af, stundum sex tíma af og stundum átta tíma af, en við fáum yfirleitt alltaf fjóra tíma. Það er nægjanlegt til þess að það frysti í ísskápnum og við náum að hlaða hin ýmsu tæki sem að þurfa rafmagn. En já, það er svona það sem er búið að vera. Í gær vorum við alveg rafmagnslaus í tæpan sólarhring.“ Óskar deildi myndskeiðinu hér að neðan á samfélagsmiðlum í gær þar sem hann veitir innsýn í þann veruleika sem við blasir í Úkraínu. Selenskí Úkraínuforseti fundar með Donald Trump, Bandaríkjaforseta, í Flórída í dag þar sem uppfærð friðaráætlun í 20 liðum verður væntanlega meðal annars til umræðu. Óskar hefur litlar sem engar væntingar til friðarviðræðna, enda hafi Rússar ekki sýnt neina viðleitni í þá veru. Þeir hafi ekki slegið af neinum kröfum sínum eða áformum gagnvart Úkraínu, og hafi frekar bætt í ef eitthvað er. Undanfarið ár hafi Rússar aukið verulega við þann fjölda dróna og flugskeyta sem beitt er gegn Úkraínu í hverri árás. „Það er búið að tífaldast. Það er sem sagt tíu sinnum fleiri hlutir í loftinu í hverri árás frá því sem var í fyrra, svona að meðaltali. Og jafnvel meira, það er komið upp í 12, 13, 14 sinnum fleiri oft í loftinu í hvert skipti sem sýnir okkur það að Rússar eru búnir að auka framleiðslugetu sína í Rússlandi töluvert, þrátt fyrir síendurteknar árásir frá Úkraínumönnum, sem verða alltaf betri og betri,“ segir Óskar. „Það er í rauninni það sem við verðum að hugsa svolítið út í, að Rússar geta alltaf bætt í þetta og Úkraína er að ná að slá mest af þessum hlutum niður úr loftinu með fjölþættu neti af loftvarnarkerfum, sem eru bæði erlend sem eru flutt hingað inn og úkraínsk sem eru sérhönnuð hér. Evrópa er ekki með neitt af þessu, ekki neitt. Það sást þegar 13 drónar fóru inn til Póllands núna ekki fyrir svo löngu síðan. Það er eitthvað sem við í Evrópu verðum að hugsa til. Ógnin, hún er ekki afmörkuð við þessi landamæri sem við búum við,“ segir Óskar.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Íslendingar erlendis Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira