Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. desember 2025 21:40 Maðurinn gekk berserksgang í neðanjarðarlestakerfi Parísarborgar. Getty Maður á þrítugsaldri stakk og særði þrjár konur á þremur ólíkum neðanjarðarlestarstöðvum á sömu leið í París síðdegis í dag. Lögregla hafði hendur í hári hans á heimili sínu þangað sem hann hafði flúið. Hvati mannsins til árásanna er ekki ljós en talið er að hann hafi glímt við geðræn veikindi.
Samkvæmt umfjöllun Le Parisien mundaði árásarmaðurinn hníf um borð í neðanjarðarlest og stakk konu. Svo fór hann út á tiltekinni stöð þar sem hann stakk aðra konu og flúði af vettvangi í neðanjarðarlest. Á þriðju stöðinni stakk hann enn aðra konu og flúði svo um borð í enn annarri neðanjarðarlest. Lögregla komst á snoðir um niðurkomu mannsins með því að fylgjast með ferðum hans í gegnum öryggismyndavélar. Maðurinn var góðkunnugur lögreglunni í París og hafði auk smáglæpa einnig dvalið í Frakklandi umfram útgefið dvalarleyfi. Lögregla gengur út frá því að maðurinn hafi glímt við alvarleg geðræn veikindi og telur ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Fórnarlömb mannsins hlutu öll minniháttar sár. Tvær þeirra voru stungnar annars vegar í bakið og hins vegar lærið, sú síðarnefnda var sömuleiðis ólétt. „Það var samt mikið blóð. Þetta voru frekar djúpir skurðir,“ hefur miðillinn franski eftir sjónarvotti. Lögreglan tók árásarmanninn fastan á heimili sínu í úthverfi Parísar um tveimur tímum eftir árásirnar.
Frakkland Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira