Kuldaskil á leið yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 26. desember 2025 07:50 Hiti verður á bilinu núll til sex stig. Vísir/Vilhelm Kuldaskil eru nú á leið austur yfir landið með rigningu eða slyddu, og snjókomu til fjalla.
Á vef Veðurstofunnar segir að skilin farafari hratt yfir og í dag megi búast við vestan- og suðvestanátt á landinu, víða 10 til 18 metrum á sekúndu með lítilsháttar skúrum eða éljum, en að létti til austanlands. Hiti verður á bilinu núll til sex stig. „Eftir hádegi eru líkur á hvössum vindstrengjum við fjöll á Norðaustur- og Austurlandi, en síðdegis dregur úr vindi, birtir til víðast hvar og kólnar.Gengur í suðvestan kalda eða strekking á morgun, en hægari vindur sunnantil. Það þykknar upp vestanlands, dálítil væta þar eftir hádegi og hiti 1 til 7 stig, en léttskýjað og svalara um landið austanvert.Á sunnudag er svo útlit fyrir hæglætis veður með lítilsháttar vætu um landið norðan- og vestanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í suðvestan 8-15 m/s, en hægari sunnantil. Þykknar upp vestanlands, dálítil væta þar eftir hádegi og hiti 1 til 7 stig, en léttskýjað og svalara um landið austanvert. Á sunnudag: Vestan og suðvestan 5-13, en lægir eftir hádegi. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil rigning, en þurrt um landið suðaustanvert. Hiti yfirleitt 0 til 6 stig. Á mánudag og þriðjudag: Vestan og suðvestan 3-10. Skýjað vestantil, úrkomulítið og hiti 1 til 6 stig, en bjart með köflum og svalara um landið austanvert. Á miðvikudag (gamlársdagur): Vestlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt suðaustanlands. Hiti 0 til 6 stig. Norðlægari um kvöldið og kólnar með éljum um landið norðanvert. Á fimmtudag (nýársdagur): Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en stöku él um landið norðaustanvert. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira