Jólin verða rauð eftir allt saman Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. desember 2025 07:33 Öll von um hvít jól er úti. Vísir/Vilhelm Sunnan hvassviðri eða stormur er í fullum gangi á landinu í dag. Hvassast er á norðanverðu landinu. Auk þess er spáð talsverðri eða mikilli rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu.
Gular og appelsínugular eru í gildi og fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Fyrstu viðvaranir tóku gildi síðdegis í gær og þær síðustu detta úr gildi undir hádegi á jóladag. Í dag verður lengst af þurrt norðaustan- og austantil, að því er kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Óvenju hlýtt er í veðri í dag, hiti 7 til 18 stig, hlýjast í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi. Á morgun dregur smám saman úr vindi, sunnan 10-18 m/s síðdegis. Áfram verður talsverð eða mikil rigning á sunnan- og vestanverðu landinu, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Áfram verður hlýtt veður. Skil fara yfir landið aðfaranótt föstudags og þá dregur aðeins úr vætu. Vestan og suðvestan 10-18 m/s og stöku skúrir eða slydduél, en rigning eða slydda framan af degi austantil, léttir til síðdegis þar. Þá kólnar í veðri, hiti 0 til 5 stig yfir daginn. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (jóladagur):Minnkandi sunnanátt, 10-18 m/s síðdegis. Súld eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðan- og austanlands.Á föstudag (annar í jólum):Snýst í vestan og suðvestan 10-18. Víða rigning, slydda eða snjókoma framan af degi og kólnandi veður. Lítilsháttar él eða slydduél eftir hádegi og rofar til á austanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig.Á laugardag:Sunnan 8-13, skýjað og sums staðar dálítil væta. Hiti 1 til 6 stig. Hægari vindur á austanverðu landinu, þurrt veður og hiti kringum frostmark, en hvessir og hlýnar þar seinnipartinn.Á sunnudag og mánudag:Suðvestlæg átt, skýjað og dálítil væta af og til, hiti 1 til 6 stig, en bjart að mestu og hiti nálægt frostmarki fyrir austan.Á þriðjudag:Breytileg átt og úrkomulítið framan af degi, en hvessir með rigningu vestantil síðdegis. Hiti 2 til 7 stig, en vægt frost á Austurlandi.
Veður Jól Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira