Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. desember 2025 07:56 Verulega hefur dregið úr olíuflutningum frá Venesúela eftir að Bandaríkjamenn hófu aðgerðir sínar á svæðinu. Getty/Jose Bula Urrutia Stjórnvöld í Kína og Rússlandi hafa lýst yfir stuðningi við Venesúela, á sama tíma og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hvatt til stjórnarskipta í landinu og stöðvað olíuflutningaskip og hótað því að halda olíunni eða selja.
Hægt hefur á olíuflutningaskipum frá því að Bandaríkjastjórn hóf að stöðva og taka yfir olíuflutningaskip sem Bandaríkin segja hluta af skuggaflota Venesúela. Skipin eru sögð flytja olíu sem sætir útflutningsbanni af hálfu Bandaríkjanna. Utanríkisráðuneyti Kína fordæmdi aðgerðir Bandaríkjamanna í gær, eftir að olíuflutningaskip á leið til Kína var stöðvað. Skipið var ekki á bannlista Bandaríkjanna en stjórnvöld í Panama sögðu það hafa brotið gegn lögum landsins og breytt nafni sínu og aftengt samskiptabúnað. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins sagði við blaðamenn í gær að stjórnvöld í Venesúela væru í fullum rétti í samskiptum sínum og viðskiptum við önnur ríki og að Kína væri á móti öllum einhliða og ólöglegum þvingunaraðgerðum. Kínverjar eru stærstu kaupendur olíu frá Venesúela. Utanríkisráðherrar Venesúela og Rússlands gagnrýndu einnig aðgerðir Bandaríkjanna í gær, þá einnig árásir Bandaríkjamanna á báta í Karabíska hafinu. Aðgerðirnar hafa beinst gegn meintum fíkniefnasmyglurum en talið er að saklausir borgarar séu meðal þeirra sem Bandaríkjamenn hafa drepið í árásum sínum. Rússar hafa lýst yfir stuðningi við stjórnvöld í Venesúela, á meðan Donald Trump hefur kallað eftir því að forsetinn Nicolas Maduro afsali sér völdum.
Venesúela Rússland Bandaríkin Kína Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Sjá meira