Ákveðin suðaustanátt, milt og skúrir síðdegis Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2025 07:11 Hiti á landinu verður á bilinu eitt til átta stig. Vísir/Vilhelm Ákveðin suðaustanátt er nú á landinu og milt. Það verða skúrir sunnantil á landinu í dag, einkum síðdegis þar sem myndarlegar dembur geta gert vart við sig.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði þurrt að mestu fyrir norðan. Veik skil úr vestri komi inn á land í kvöld og gangi til austurs yfir landið með samfelldari úrkomu um tíma, rigningu eða slyddu og það kólnar. Hiti á landinu verður á bilinu eitt til átta stig. Á morgun kemur svo næsta bylgja með sunnan hvassviðri og rigningu og það hlýnar aftur, en norðaustantil ætti hann að hanga þurr. Slagveðursrigningin heldur síðan áfram á aðfangadag og jafnvel bætir í vindinn, sérstaklega fyrir norðan þar sem búast má við sterkum hviðum við fjöll. Talsvert vatnsveður fylgir þessu sunnan- og vestanlands með tilheyrandi vatnavöxtum og skriðuhættu. Útlit fyrir að dragi aðeins úr veðurhæðinni og rigningu á jóladag, en líklega verður það ekki fyrr enn á annan í jólum þar sem veðrið gæti skipt um gír og orðið eitthvað jólalegra vonandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag (Þorláksmessa): Vestan 5-13 m/s og rigning eða slydda austanlands, en lægir og léttir til með morgninum. Annars suðlægari og bjart með köflum en stöku skúrir vestanlands. Hiti um eða yfir frostmarki. Gengur í sunnan hvassviðri með rigningu vestanlands eftir hádegi. Hlýnar í veðri. Á miðvikudag (aðfangadagur jóla): Sunnan 15-25 m/s, hvassast á Norðurlandi. Rigning sunnan- og vestanlands, og sums staðar talsverð úrkoma, en þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig. Á fimmtudag (jóladagur): Sunnan 13-20 og súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt, en snýst í suðvestan 8-15 með éljum vestanlands um kvöldið og kólnar. Á föstudag (annar í jólum): Suðvestlæg átt með éljum, en bjart fyrir austan. Hiti um eða yfir frostmarki. Á laugardag: Suðvestlæg átt og lítilsháttar væta, en bjart að mestu fyrir austan. Hlýnandi. Á sunnudag: Vestlægari og væta af og til, en þurrt austanlands. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira