Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2025 15:57 Ríkissjóður Japan er einn sá skuldsettasti meðal svokallaðra þróaðra ríkja. AP/Eugene Hoshiko Seðlabanki Japan hækkaði stýrivexti þar í landi í morgun og hafa þeir ekki verið hærri í þrjá áratugi. Verðbólga hefur verið nokkur í Japan, jenið hefur veikst gegn dollaranum og kaupmáttur hefur dregist saman.
Stýrivextirnir voru hækkaðir um fjórðung úr prósentustigi eða úr 0,5 prósentum í 0,75 prósent. Greinendur og fjárfestar höfðu búist við þessari ákvörðun, samkvæmt frétt Japan Times. Þetta er þó í fyrsta sinn frá árinu 1995 sem stýrivextir fara upp fyrir 0,5 prósent. Í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd Japan segir að óvissa vegna tolla Trumps hafi minnkað og að forsvarsmenn fyrirtækja í Japan séu enn á þeim nótum að hækka laun á næsta ári. Nefndin segist einnig tilbúin til að hækka vexti frekar í framtíðinni. Samkvæmt frétt New York Times þykir einnig líklegt að hækkunina megi rekja til ætlunar stjórnvalda í Japan um að auka verulega fjárútlát ríkisins til að ýta undir hagvöxt. Ríkissjóður Japan er þegar töluvert skuldsettur. Skuldir ríkissjóðs eru rúmlega tvöföld verg landsframleiðsla ríkisins. Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japan, hefur samþykkt 117 milljarða dala útgjaldapakka sem ætlað er að nota til hergagnakaupa, fjárfestinga í innviðum og skipasmíði og til að draga úr útgjöldum heimila. Rúmlega helmingurinn af þessum pakka verður fjármagnaður með lánum. Sérfræðingar sem ræddu við NYT segja líklegt að pakkinn muni auka vöxt en hann muni gera stöðu ríkissjóðs Japan töluvert verri. Óvissa um framtíðina muni aukast.
Japan Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira