Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 18. desember 2025 13:50 Munurinn á klámi og raunverulegum samböndum er meðal þess sem bresk stjórnvöld hyggjast kenna ungum drengjum sem sýni af sér óæskilega hegðun. Getty Börn allt niður í ellefu ára, sem sýna af sér hegðun sem markast af kvenfyrirlitningu, munu fá sérstaka kennslu um samskipti kynjanna verði áform breskra stjórnvalda að veruleika. Markmiðið með sérstöku námskeiði sem miðað verði að drengjum er að vinda ofan af og koma í veg fyrir ofbeldisfull viðhorf og hegðun í garð stúlkna og kvenna.
Breskir fjölmiðlar fjalla um málið í vikunni en fram kemur í umfjöllun Guardian í dag að meðal annars sé lagt upp með að drengir fái kennslu þar sem þeir læri meðal annars um muninn á klámi og raunverulegum samböndum. Um sé að ræða milljóna punda fjárfestingu í að uppræta kvenfyrirlitningu sem náð hafi fótfestu í enskum skólum. Í tengslum við nýkynnta aðgerðaáætlun breskra stjórnvalda gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum ræddi Guardian við David Lammy, utanríkisráðherra. Kvenfyrirlitning hafi fest rætur „Þetta byrjar með því hvernig við ölum upp drengina okkar,“ segir Lammy um baráttuna gegn ofbeldi. Eitruð karlmennska og það að tryggja öryggi kvenna og stúlkna séu tengd fyrirbæri. Meðal þeirra aðgerða sem boðaðar eru í aðgerðaáætluninni er úrræði sem gerir kennurum kleift að senda nemendur í áhættuhópi í sérstaka þjálfun, ef þeir sýna af sér hegðun sem þykir til marks um hættu á að viðkomandi valdi öðrum skaða. Þá fái kennarar sérstaka þjálfun í því hvernig megi grípa inn í. Námsskeiðið er hugsað sérstaklega fyrir drengi sem sýni af sér ákveðna hegðun, en stúlkur gætu einnig þurft að sækja kennsluna í ákveðnum tilfellum.Getty Í umfjöllun Times um sama mál segir að nemendur sem sýni af sér skaðlega hegðun verði skráðir í „hegðunarbreytingarnámskeið“ í skólanum þar sem kennsla miði að því að vinda ofan af „rótgrónum áhrifum kvenfyrirlitningar.“ Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði við kynningu áætlunarinnar að „allir foreldrar eigi að geta treyst því að dætur þeirra séu öruggar í skólanum, á netinu og í samböndum. En of oft fá eitraðar hugmyndir að festa rætur snemma, óáreitt.“ Margvísleg óæskileg hegðun sem ætlunin er að taka á Meðal annars standi til að veita kennslu um djúpfalsanir, stafrænt kynferðisofbeldi og áreiti auk þess sem tekið verði á eltihrellahegðun, hópþrýstingi og læsi á klám og það sem er raunverulegt svo fátt eitt sé nefnt. Fram kemur í umfjöllun Guardian að gert sé ráð fyrir að námsskráin verði tilbúin fyrir opinbera skóla til notkunar frá og með haustinu 2026. Jess Phillips er ráðherra málaflokks um vernd og kynbundið ofbeldi í ríkisstjórn breska Verkamannaflokksins.EPA/ADAM VAUGHAN Jess Phillips, ráðherra málaflokksins, hefur heitið því að „beita öllu valdi ríkisins til að kynna umfangsmestu aðgerðir gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum,“ líkt og haft er eftir henni í umfjöllun Time. Þar segir einnig að stúlkum geti einnig verið gert að sitja námskeiðið ef þær sýni af sér skaðlega hegðun, en megináherslan sé þó á drengi og unga karla. Þá eigi að setja á fót hjálparsíma fyrir táninga þar sem þeir geti fengið aðstoð vegna eigin hegðunar. Time greindi jafnframt frá því að um 70% kennara á mið- og unglingastigi grunnskóla í Bretlandi hafi þurft að takast á við kynbundið ofbeldi og áreitni á milli nemenda samkvæmt nýlegri rannsókn. Þá kemur fram í annarri frétt Guardian í dag að kennarar í Bretlandi þurfi stuðning til að takast á við vaxandi vanda af völdum kvenfyrirlitningar af hálfu nemenda í garð kennara.
Bretland Kynbundið ofbeldi Kynferðisofbeldi Stafrænt ofbeldi Börn og uppeldi Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fleiri fréttir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Sjá meira