Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar 15. desember 2025 11:01 Aftur höfum við vaknað við fréttir af árás þar sem saklausir borgarar voru drepnir. Í þetta sinn var það hópur gyðinga í Sydney sem fagnaði ljósahátíð gyðinga, þar á meðal tíu ára stúlka. Þetta er skelfilegt áfall sem á að vekja samstöðu og samúð. Hins vegar verðum við líka að horfast í augu við samhengið og spyrja hvað er það sem setur samfélög gyðinga í hættu í dag? Samasemmerki milli útþenslustefnu Netanyahu og gyðingdóms Ein stærsta og hættulegasta lygi samtímans er sú að Ísraelsríki og gyðingdómur séu eitt og hið sama. Öfgahægristjórn Netanyahu hefur meðvitað ýtt undir þessa zíónísku hugmyndafræði og notað hana sem skjöld gegn allri gagnrýni. Ef þú mótmælir morðum á palestínskum börnum, þá ertu stimplaður sem gyðingahatari. Ef þú krefst þess að alþjóðalög séu virt, þá ertu sakaður um hatursorðræðu. Þetta er ekki aðeins rangt – þetta er stórhættulegt. Með því að krefjast þess að útrýming Palestínumanna sé „gyðinglegt“ verkefni tengt biblíunni eru gyðingar um allan heim gerðir að óbeinum fulltrúum ríkisvalds sem þeir hafa enga stjórn á. Þeir verða skotmörk vegna glæpa sem þeir hvorki frömdu né styðja. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er pólitísk stefna zíónismans sem setur gyðinga beinlínis í hættu. Í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar eru það gyðingar sjálfir sem standa fremstir í mótmælum gegn þjóðarmorðinu á Gaza. Samtök gyðinga gegn hernámi, rabbínar, fræðimenn og afkomendur fórnarlamba helfararinnar segja skýrt: Ekki í okkar nafni. Þessar raddir fá þó takmarkað pláss í fjölmiðlum. Þær passa ekki inn í þá einföldu, pólitísku ímynd að þetta séu átök milli lýðræðisríkis hvítra manna og brúnna hryðjuverkamanna sem eru múslimar. Þessar raddir ögra ríkjandi söguskoðun um að gagnrýni á Ísrael er ekki gyðingahatur, heldur siðferðileg skylda. Þegar stjórnmálamenn og fjölmiðlar þagga niður í þessum mótmælaröddum eru þeir ekki að vernda þennan minnihlutahóp. Þeir eru í raun að fórna honum. Óréttlæti elur ofbeldi – ekki trúarbrögð Það er freistandi fyrir stjórnvöld að útskýra ofbeldi með einföldum hætti: „öfgar“, „hatursáróður“, „trúarofstæki“. En rannsóknir segja aðra sögu. Þróunarstofnun Sameinuðu Þjóðanna (UNDP) hefur ítrekað rannsakað rætur ofbeldisfullrar öfgahyggju. Í skýrslunni Journey to Extremism kemur skýrt fram að helstu drifkraftar þess að fólk gangi til liðs við öfgasamtök eru ekki trúarleg sannfæring, heldur upplifun á óréttlæti, niðurlægingu, pólitískri útilokun og ofbeldi af hálfu ríkisvalds. Meirihluti þeirra sem rannsakaðir voru höfðu upplifað handahófskenndar handtökur, pyntingar eða kerfisbundið misrétti. Þegar kerfið bregst þá leitar fólk út fyrir það. Þetta er ekki réttlæting á ofbeldi. Þetta er útskýring á því hvernig það verður til. Sagan endurtekur sig: Afganistan, Írak og 11. september Við höfum séð þetta mynstur aftur og aftur. Mujahedin-hreyfingin reis ekki upp í tómarúmi. Hún varð fyrst til í skugga innrásar og hernáms Sovétríkjanna. Al-Qaeda náði ekki fótfestu í Írak nema fyrir tilstilli innrásar Bandaríkjamanna. ISIS varð ekki til án niðurlægingar, fangabúða innrásarhersins og kerfisbundinnar útilokunar súnni-múslima. Jafnvel hryðjuverkin 11. September, eitt hroðalegasta hryðjuverk samtímans á Vesturlöndum, voru afleiðing áratuga utanríkisstefnu Bandaríkjanna, stuðnings við harðstjórnir og stríðsreksturs í Miðausturlöndum. Þetta hafa bæði bandarískir öryggissérfræðingar og fyrrverandi embættismenn viðurkennt. Óréttlæti elur ekki alltaf ofbeldi en án óréttlætis nær ofbeldið sjaldnast fótfestu. Fjölmiðlar og ríkisstjórnir sem afmennska Palestínumenn Hvernig er hægt að sprengja sjúkrahús, flóttamannabúðir og skóla og halda því fram að þetta sé „sjálfsvörn“? Svarið liggur að hluta hjá fjölmiðlum. Palestínsk börn eru gerð að tölfræði. Dauði þeirra er alltaf skilyrtur eins og: „samkvæmt heimildum Hamas“. Hundruð myrtra barna í Palestínu kemst ekki lengur í blöðin. Ímyndið ykkur að sama orðræða væri notuð þegar úkraínsk börn eru myrt. Það er einfaldlega óhugsandi. Þessi afmennskun gerir þjóðarmorð mögulegt og hún býr til þá reiði sem öfgahópar nýta sér. Í Bretlandi er verið að banna samtök eins og Palestine Action, herða lög gegn mótmælum og stimpla samstöðu með Palestínu sem öfgastefnu. Á sama tíma halda stjórnvöld áfram að senda vopn til Ísraels þrátt fyrir yfirgnæfandi andstöðu almennings. Þetta er hættuleg blanda: kúgun, samasemmerki milli gyðinga og Ísraelsríkis, og svo algert siðferðislegt ábyrgðarleysi í utanríkisstefnu Vesturlanda sem setur viðskiptahagsmuni ofar alþjóðalögum. Þannig eru gyðingar settir í hættu, ekki verndaðir. Skaðinn á gyðingdómi sjálfum Fræðimaðurinn og vinur minn Barnett Rubin hefur varað eindregið við því að það sem nú á sér stað sé ekki aðeins hörmung fyrir Palestínumenn, heldur einnig fyrir gyðingdóminn. Netanyahu og stjórn hans eru að tæma hugtök eins og „aldrei aftur“ og „minning helfararinnar“ af siðferðilegu innihaldi. Þegar þjóðarmorð er réttlætt í nafni fórnarlambasögu, þá er sú saga svikin. Gyðingdómur hefur í aldaraðir staðið fyrir réttlæti, samúð með kúguðum og andstöðu við ofbeldi ríkisvalds. Að tengja hann við kerfisbundna útrýmingu annars fólks er ekki vörn það er afhelgun samkvæmt Rubin. Friður krefst réttlætis Ég syrgi barnið í Sydney. Ég syrgi börnin í Palestínu. En sorg án ábyrgðar breytir engu. Ef við viljum stöðva árásir á samfélög gyðinga, stöðva öfgar og byggja raunverulegt öryggi, þá verðum við að stöðva þjóðarmorðið í Palestínu. Við verðum að rjúfa hættulegt samasemmerki milli gyðingdóms og Ísraelsríkis. En síðast en ekki síst, verðum við að krefjast þess að stjórnvöld á Íslandi fari að fylgja alþjóðalögum, en ekki pólitískri hentisemi. Friður næst ekki fram í stríði eða með hernámi. Hann verður aðeins byggður á réttlæti. Höfundur hefur starfað í Miðausturlöndum fyrir Sameinuðu Þjóðirnar og er sérfræðingur um öryggismál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helen Ólafsdóttir Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Our home, our vote, our future Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun